Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Francesca Cuturi (13/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Það voru 7 stúlkur sem höfnuði í 51. sæti allar á samtals 4 yfir pari, 364 höggum, en þetta eru þær: María Beautell; Marie Fourquier,Julie Maisongrosse, Elizabeth Mallett; Jessica Bradley, Francesca Cuturi og Sideri Vanova.

María Beautell frá Spáni, Julie Maisongrosse og Marie Fourquier frá Frakklandi hafa þegar verið kynntar og í dag verður Francesca Cuturi kynnt.

Francesca Cuturi er frá S-Afríku og fæddist 20. október 1989 og er því 27 ára. Cuturi er frá North Riding, Gauteng,

Hún hefir verið að spila á Sunshine Ladies Tour í S-Afríku, en tók í fyrsta sinn þátt í lokaúrtökumóti LET í Marokkó 2014 og gekk ekki vel.

Nú hins vegar er Cuturi komin með takmarkaðan spilarétt á LET fyrir keppnistímabilið 2017.

Sjá má ágætis viðtal við Cuturi frá því í október á síðasta ári (2016) með því að SMELLA HÉR: 

Kynnast má Cuturi nánar með því að fara á facebook síðu hennar með því að SMELLA HÉR: