Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Emilie Alonso (23/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að kynna þær sem höfnuðu  í 42. sætinu; allar á samtals 2 yfir pari, 362 höggum, hver.

Þetta eru þær: Sharmila Nicollet frá Indlandi og enski kylfingurinn Amber Ratcliffe sem þegar hafa verið kynntar og Celine Borge frá Noregi; Anäis Maggetti frá Sviss og Emilie Alonso frá Frakklandi.

Í dag verður Emilie Alonso kynnt.

Emilie Alonso fæddist í Nice, Frakklandi 17. maí 1993 og er þvi 23 ára Hún fæddist  í fjölskyldu tónlistarmanna en foreldrar hennar Marc Laurent og Isabelle eru tónlistarkennarar við  l’Académie Prince Rainier III í Mónakó. Emilie á 1 systur: Marie Isabelle.

Það gat allt eins legið fyrir Emilie að verða tónlistarmaður en hún sannfærði foreldra sína um að innrita sig í golfskóla og á einu ári fór forgjöf hennar úr 53,5 í 3,5.

Emilie Alonso er yngsti kylfingurinn í golfsögu Frakklands til að spila í unglingagolflandsliði Frakka, aðeins 12 ára.  Hún hefir 4 sinnum orðið franskur meistari.

Sigrar Emilie sem áhugamanns á Doral Publix Junior Golf Classic og 3. sæti sem hún náði í Jeux Méditerranéens urðu til þess að hún komst í Junior Solheim Cup í Knightsbrook, 18 ára.

Emilie lék síðan eftir útskrift í menntaskóla í bandaríska háskólagolfinu 2011-2012 með golfliði Arizona háskóla – Sjá má afrek hennar í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Emilie gerðist atvinnumaður í golfi 6. janúar 2016. Hún spilaði í Evian Championship risamótinu 2016 og varð T-36.

Sjá má heimasíðu Emilie með því að SMELLA HÉR:   og sjá má facebook síðu Emilie með því að SMELLA HÉR: 

Hér má sjá nýlegt viðtal við Alonso sem birt var 9. júní í fyrra 2016 á vef LET Access – Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má sveiflu og kynningarmyndskeið með Emilie (að vísu á frönsku) með því að SMELLA HÉR: 

Meðal áhugamála Emilie fyrir utan golfið eru ræktin, að syngja, slappa af, fara í göngu eða hjólreiðaferðir. Uppáhaldskylfingar Emilie eru Rory og Lydia Ko.