Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Jessica Bradley (16/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Það voru 7 stúlkur sem höfnuði í 51. sæti allar á samtals 4 yfir pari, 364 höggum, en þetta eru þær: María Beautell; Marie Fourquier,Julie Maisongrosse, Elizabeth Mallett; Jessica Bradley, Francesca Cuturi og Sideri Vanova.

Þær hafa nú allar verið  kynntar, nema Jessica Bradley sem kynnt verður í dag.

Jessica Bradley hefir spilað golf síðan hún var 7 ára.

Jessica spilaði m.a í bandaríska háskólagolfinu í 4 ár með skólaliði Lynn University í Flórída.

Hún gerðist atvinnumaður 1. janúar 2016 eftir að hún komst á LET í fyrsta sinn, strax eftir útskrift en þetta keppnistímabil 2017 er hún með takmarkaðan spilarétt á LET.

Fræðast má nánar um Jessicu á flottri vefsíðu hennar sem sjá má með því að SMELLA HÉR: