Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 12. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Elia Folch (42/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.

Nú erum við að byrja að kynna þær heppnu, sem höfnuðu í 21. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 4 stúlkur sem allar léku á 3 undir pari, 357 höggum, hver.

Þetta eru þær Neha Tripathi frá Indlandi (72 69 69 76 75); Luna Sobron frá Spáni (73 74 69 68 73); Elia Folch frá Spáni (75 71 72 70 69) og Yan Liu frá Kína (69 73 70 69 76).

Allar nema Elia Folch  frá Spáni hafa verið kynntar og verður Elía kynnt í dag.

Elia Folch fæddist 21. janúar 1991 líkt og annar kunnur golfkappi, þar sem er golfgoðsögnin sjálf Jack Nicklaus.

Elía fæddist í Barcelona og er nýorðin 26 ára.

Elía býr í Terrassa á Spáni og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfleik sinn.

Uppáhaldsgolfvöllur Elía er Flint Hills í Kansas, Bandaríkjunum.

Elía gerðist atvinnumaður í golfi 28. desember 2015.

Komast má á Twitter síðu Elíu með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á Facebook síðu Elíu með því að SMELLA HÉR: