Sharmila Nicolette Nýju stúlkurnar á LET 2017: Sharmila Nicollet (21/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.
Alls hafa 20 stúlkur verið kynntar en í dag verður byrjað að kynna þær sem höfnuðu í 42. sætinu; allar á samtals 2 yfir pari, 362 höggum, hver.
Þetta er þær: Sharmila Nicollet frá Indlandi; Celine Borge frá Noregi; Anäis Maggetti frá Sviss; Emilie Alonso frá Frakklandi og Amber Ratcliffe frá Englandi.
Byrjað verður á að kynna Sharmilu Nicollet frá Indlandi.
Sharmila rétt marði Q-school 2012 var í hópi 6 stúlkna sem lentu í bráðabana um tvö laus sæti með fullan keppnisrétt á LET og var Sharmila önnur stúlknanna sem hafði betur. Árið 2013 gekk Sharmilu betur í Lalla Aicha Tour School; varð T-17 og náði þannig að tryggja kortið sitt örugglega.
Golf 1 hefir áður kynnt Sharmilu, reyndar fylgst með henni allt frá árinu 2010, þegar höfundur þessarar greinar skrifaði um hana á iGolf.
En…. þar sem það er alltaf gaman að skrifa um Sharmilu fer hér ný kynningargrein um hana:
Sharmila Nicollet fæddist í Bangalore, 12. mars 1991 og er því 25 ára. Pabbi hennar er Frakkinn Marc Nicollet og er tölvufræðingur og mamma hennar Surekha er indversk og rekur sína eigin ilmvatnsverslun í Bangalore, Padmini Aroma Ltd .
Sharmila, sem er fremur hávaxin, 1,81 á hæð, hlaut menntun sína í Bishop Cotton Girls’ School og í Bangalore International school, en kláraði 10. og 12. bekk utan skóla. Hún les einnig utan skóla í háskóla nú.
Sharmila byrjaði í golfi 2002, þá 11 ára. Hún vann fyrsta mótið sitt 15 ára. Sem krakki vann hún 72 gull og silfur medalíur í sundi á Indlandi.
Sharmila Nicollet er 2. indverski kylfingurinn til þess að öðlast kortið sitt á LET, og var lengi vel sá yngsti, þar til Aditi Ashok kom á sjónarsviðið.
Hún keppti m.a. fyrir Indlands hönd í Asian Games í Doha 2006, í Asia Pacific Junior Golf Tournament, hún spilaði í Callaway World Junior Championship í San Diego, Kaliforníu, Queen Sirkit Cup í Japan, Malaysian Open og öðrum alþjóðlegum mótum.
Sharmila var yngsti kvenkylfingurinn til þess að sigra á All-India Ladies Amateur Championship 2007-2008 ásamt 7 öðrum áhugamannstitlum.
Nicollet gerðist atvinnumaður í golfi 1. ágúst 2009.
Hún tók þátt í Women´s Indian Open 2011 og varð T-22.
Nicollet spilaði með Lauru Davies aðeins 16 ára í Emaar-MGF Challenge Match, holukeppnismóti sem haldið var fyrir LET mót sem fram fór á Indlandi 2007. Eftir sigur þeirra tveggja sagði Davies m.a. „…. á grundvelli reynslu minnar tel ég að Sharmila hafi hæfileika til þess að verða góður kylfingur.“
Núverandi þjálfari Sharmilu er Tarun Sardesai og fyrrverandi þjálfari hennar er Gaurav Diwan. Báðir telja að Sharmila sé náttúrutalent.
Sharmila gerðist atvinnumaður 2009 þegar hún var 18 ára. Hún var efst á stigalistanum á Indlandi 2009-2011. Hún varð einnig efsti indverski kylfingurinn á Hero Women´s Indian Open, með árangur upp á T-23. Hún vann m.a. Hero-KGA mótið, 2012 og Hero-WPGT, árið 2015.
Alls hefir Sharmila 11 sigra í beltinu sem atvinnumaður í golfi.
Sharmila spilaði fyrst á LET árið 2007 og hefir spilað óslitið frá árinu 2011, en að vísu verður hún aðeins með takmarkaðan spilarétt nú í ár, 2017, 10 árum frá því að hún spilaði fyrst á þessari sterkustu mótaröð Evrópu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
