Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Marta Sanz Barrio (11/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 26.-34. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari.

Næst verða þær 7 stúlkur kynntar sem urðu í 19.-25. sætinu, allar á samtals sléttu pari, en það eru: finnsku stúlkurnar Marika Voss, Elina Numenpaa og Linda Henriksson; Lien Willems frá Belgíu; Alex Peters frá Englandi; Nina Muehl frá Austurríki og Marta Sanz frá Spáni.

Sú sem kynnt verður í dag er spænska stúlkan Marta Sanz.  Hún var á samtals sléttu pari, skorinu 360 högg (70 73 71 71 75)

Marta Sanz fæddist 18. janúar 1994 , dóttir  Carmelo Sanz og Marina Barrio og því 20 ára. Marta byrjaði að spila golf 4 ára.

Bæði Marta og eldri systir hennar Patrica spiluðu síðan golf í bandaríska háskólagolfinu, með háskólaliði Auburn; Patricia var þar 2008-2012, en Marta er nýútskrifuð með gráðu í alþjóðlegri viðskiptafræði.

Hún gerðist atvinnumaður í golfi í fyrra, 2014.

Marta er frá Madríd og er þar í  R.A.C.E. golfklúbbnum.

Meðal áhugamála Mörtu er að horfa á kvikmyndir, íþróttir almennt og þá sérstaklega tennis fyrir utan golfið.

Nú er Marta sem sagt bæði komin fullan keppnisrétt á LET og þar að auki með takmarkaðan spilarétt á LPGA sem þýðir að hún spilar í öllum mótum LET og fær auk þess að spila á Symetra Tour og verður boðið á nokkur LPGA mót

Góð byrjun hjá þessari ungu stúlku!!!