Nýju stúlkurnar á LET 2015: Louise Friberg (22/34)
Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.
Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.
Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.
Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.
Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 15.-34. sætinu.
Næst verða kynntar tvær stúlkur sem urðu í 13.-14. sætinu, en þær léku á samtals 3 undir pari. Þetta eru þær Louise Friberg frá Svíþjóð og Emma Goddard, frá Englandi. Emma Goddard hefir þegar verið kynnt.
Sú sem kynnt verður í dag er sænska stúlkan Louise Friberg. Hún var á samtals 3 yfir pari, skorinu 357 höggum (73 67 77 69 71)
Louise Friberg fæddist 24. júní 1980 í Helsingborg, Svíþjóð og er því 34 ára.
Friberg byrjaði í golfi 9 ára og segir foreldra sína og systur hafa haft mest áhrif á feril sinn.
Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of Washington, þaðan sem hún útskrifaðist 2003 með gráðu í umhverfisrétti.
Friberg hefir verið í sænska golflandsliðinu frá 1996. Hún spilaði m.a. unglingamótaröð Svíþjóðar og varð Norðurlandameistari í golfi 1997.
Friberg var Friberg hlaut Second-Team All-Pac-10 honors árið 2002 og First-Team All-Pac-10 honors árið 2003 í University of Washington.
Árið 2005 spilaði hún á Telia Tour og hefir síðan þá spilað á einstökum mótum á LPGA.
Meðal áhugamála Friberg er lestur góðra bóka, bílar og að verja tíma með fjölskyldu og vinum.
Sjá má allt nánar um Friberg með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
