Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2015 | 12:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Emma Goddard (21/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 15.-34. sætinu.

Næst verða kynntar tvær stúlkur sem urðu í 13.-14. sætinu, en þær léku á samtals 3 undir pari. Þetta eru þær  Louise Friberg frá Svíþjóð og Emma Goddard, frá Englandi.

Sú sem kynnt verður í dag er enski áhugakylfingurinn Emma Goddard.  Hún var á samtals 3 yfir pari, skorinu 357 höggum (69 70 69 76 73)

Emma Goddard er 24 ára. Hún byrjaði að spila golf 11 ára. Hún er frá Halewood í Englandi.  Hún hefir átt ansi glæstan áhugamannsferil en árið 2007 varð hún m.a.  evrópskur meistari í flokki 15-17 ára í Faldo Series og það ár vann hún 3. enska meistaratitil sinn.

Emma, var í Halewood College og heima á Englandi er hún félagi í Vale Royal Millennium Junior golfklúbbnum.

Í fyrra 2014 varð Emma m.a. Cheshire Ladies Champion. nánar tiltekið þann 30. maí 2014 .

Nú í ár, 2015 er Emma komin með fullan spilarétt á LET eftir glæsilegan árangur í Q-school í Marokkó.