Anjelika Hammar
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 12. 2015 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Anjelika Hammar (26/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 10.-34. sætinu.

Anjelika Hammar

Anjelika Hammar

Næst verður kynnt Anjelika Hammar frá Svíþjóð sem varð ein í 9. sætinu í Q-school.

Hún lék á samtals 5 undir pari, skorinu 355 höggum (75 75 68 68 69 ).

Anjelika Hammar fæddist 11. nóvember 1990 í Jekaterineburg í Rússlandi. Hún er samt sænsk.

Anjelika gerðist atvinnumaður í golfi 19. júní 2012 eftir farsælan áhugamannsferil í Svíþjóð.

Anjelika er 163 cm há með brúnt hár og brún augu.

Hún var í golfdeildinni í Halmstad háskóla og lagði stund á íþróttafræði.

Meðal áhugamála Ajeliku er að ganga meðfram ströndinni með regn og vind í vöngum. Að kvöldi til nýtur hún þess að hafa huggulegt með kertaljósum eða við arineld saman með vinum að búa til eitthvert gott í matinn.