Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2015 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Amber Ratcliffe (8/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Byrjað verður að kynna þær 9 stúlkur sem urðu í 26.-34. sætinu; allar á  samtals 1 yfir pari, en það var skorið, sem þurfti til að komast inn á Evrópumótaröð kvenna í ár.

Sjö fyrstu af þessum 9 stúlkum hafa þegar verið kynntar þ.e. þær Laura Murray og Heather MacRae frá Skotlandi,  Lucie André frá Frakklandi, og Melissa Eaton frá Suður-Afríku, Rebecca Sörensen og Lynn Carlson frá Svíþjóð og Lauru Jansone frá Lettlandi,  en nú er komin röðin  að 8. kylfingnum þ.e. Amber Ratcliffe en hún var samtals á skorinu 1 yfir pari, 361 höggi (75 74 71 69 72).

Amber Ratcliffe fæddist 18. október 1995 og er því 19 ára.  Heima á Englandi er klúbbur Amber Royal Cromer golfklúbburinn og hún er með +3 í forgjöf.

Helstu afrek Amber eru eftirfarandi:

2009 – Hluti af EWGA Super Birdies Midlands liðinu.  Þetta ár aðeins 13 ára  varð Amber enskur skólameistari í golfi (ens.: English School Champion).

2010 – Amber var þetta árið, 14 ára fulltrúi Englendinga í European Young Masters Team. Amber varði titil sinn frá árinu áður í English School Champions og varð þar að auki meistari í East Regional Girls and Ladies Champion.

2011 – Amber var þetta árið, 15 ára, hluti af the Select Midlands Squad. Auk þess var hún fulltrúi liðs Breta&Íra í the Junior Vagliano. Eins var hún í liði Englands í the European Young Masters. Þetta ár, 2011, varð Amber í 3. sæti í Scottish U.16 Championships. Hún varð Hacienda del Alamo Girls Champion. Eins varð hún County Champion. Fairhaven Trophy Champion. í 2. sæti í  the North of England U.16 Championships í 2. sæti í the Regional Girls Championships og síðan Regional Ladies Champion.

2012 – Amber var þetta árið, 16 ára í EWGA Performance Squad. Hún var fulltrúi Englands í the Girl’s and Ladies Home International Matches. Hún varði titil sinn sem County Champion Amber varð auk þess East Region Ladies Champion og  í 7. sæti  í breska meisstaramótinu í höggleik ( ens. British Stroke Play Championships).

2013 – Þetta árið 17-18 ára var Amber hluti af the England Golf Performance Girls Squad. Hún var í liði Englands í the French Lady Junior U21 Championships, í European Girls’ Team Championships og í  the Ladies Home International Team. Amber var í liði Breta&Íra í the Vagliano Trophy Europe og í the Junior Solheim Cup.  Eins var Amber komin á LET Access.

Frá árinu 2014, þ.e. 18-19 ára hefir Amber verið í kvennalandsliði Englands í golfi og er komin á LET.

Sjá má hvað er í uppáhaldi hjá Amber með því að SMELLA HÉR: 

Fræðast má nánar um Amber á heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR: