Nýju stúlkurnar á LET 2014: Krista Bakker (12/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Það voru 4 stúlkur sem deildu 19. sætinu (voru jafnar í 19.-22. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals slétt par, 360 högg: Fiona Puvo, Krista Bakker, Julie Tvede og Elina Nummenpaa.
Finnski kylfingurinn Elina Nummenpaa og danski kylfingurinn Julie Tvede hafa þegar verið kynntar en í dag verður sá kylfingur kynntur sem varð í 20. sæti þ.e. finnski kylfingurinn Krista Bakker. Krista lék á samtals sléttu pari eins og segir 360 höggum (74 70 71 75 70).
Krista Bakker er fædd Aðfangadag 1993 í Espoo, Finnlandi og er því 20 ára. Fyrir utan golfið eru helstu áhugamál hennar að fara að skokka, vera í ræktinni og vera í jóga. Krista gerðist atvinnumaður í golfi í þessum mánuði (janúar 2014).
Krista er fremur lágvaxin og fínleg, 1,63 m á hæð ljóshærð með græn augu. Þjálfari hennar hefir alla tíð verið pabbi hennar. Áhugamannsferill hennar er flottur en hún varð m.a. í 4. sæti á World Amateur Team Championship í Tyrklandi 2012 og í 3. sæti á European Amateur Championsip, 2013. Eins og fram kemur í neðangreindu viðtali við Kristu hefir hún oft verið við æfingar með finnska landsliðinu á Costa Ballena og þar náði hún m.a. lægsta hring ferils síns til þessa 64 högg á æfingahring.
Þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur þátt í Q-school LET og er strax komin á Evrópumótaröð kvenna.
Sjá má nýlegt viðtal fréttafulltrúa LET við Bakker með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
