Nýju stúlkurnar á LET 2014: Fiona Puyo (13/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Það voru 4 stúlkur sem deildu 19. sætinu (voru jafnar í 19.-22. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals slétt par, 360 högg: Fiona Puyo, Krista Bakker, Julie Tvede og Elina Nummenpaa.
Finnsku kylfingarnir Krista Bakker og Elina Nummenpaa og danski kylfingurinn Julie Tvede hafa þegar verið kynntar en í dag verður síðasti kylfingurinn kynntur sem varð í 19. sæti þ.e. franski kylfingurinn Fiona Puyo. Puyo lék á samtals sléttu pari eins og segir 360 höggum (71 75 71 73 70).
Fiona Puyo er fædd 11. janúar 1987 í Epernay, Frakklandi og er því nýorðin 27 ára.
Puyo er 1m70 cm á hæð með brún augu og brúnt hár. Hún byrjaði að spila golf 14 ára í Venezuela. Puyo er alin upp í Venezuela, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Argentinu og Frakklandi. Puyo tók þátt í unglingagolfstarfi La Nivelle Golf Club þegar hún sneri aftur til Frakklands og var forgjöf hennar komin niður í 1 stafs tölu innan árs. Puyo útskrifaðist með gráðu í viðskiptafræði og spilaði fyrst á LPGA Futures Tour (Symetra Tour). Í dag æfir Puvo aðallega í Frankfurt Golf Club (í Frankfurt, Þýskalandi) og linkinu í Stono Ferry (Charleston, SC USA) og Golf de la Nivelle (Ciboure, Frakklandi). Puyo býr í Frankfurt, Þýskalandi og segir fjölskyldu og þjálfara sína hafa haft mestu áhrif á sig í golfinu.
Puyo gerðist atvinnumaður 2012. Meðal hápunkta á áhugamannsferli hennar er að Puvo varð franskur meistari 2011.
Meðal áhugamála Puyo utan golfsins eru lestur góðra bóka, að vera á seglbretti, að spila saxófón, að kanna nýja staði og menningarsvæði þ.e. ferðast.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

