Nýju stúlkurnar á LET 2014: Bonita Bredenhann (5/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Það voru 5 stúlkur sem deildu 27. sætinu (voru jafnar í 27.-31. sætinu) og rétt sluppu inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 yfir pari, 362 högg: Bonita Bredenhann, Lucy Williams, Victoria Lovelady , Laura Janson og Charlotte Thompson.
Búið er að kynna Charlotte Thompson, Lauru Jansone og Victoriu Lovelady og Lucy Williams og í dag verður sú stúlka kynnt sem varð í 27. sætinu: Bonita Bredenhann, frá Namibíu en hún er fyrsti kylfingurinn þaðan til að spila á LET. Þess ber að geta að eftir 1. hringinn í úrtökumótinu voru hún og Valdís Þóra okkar jafnar en síðan fór allt á versta veg hjá Valdísi Þóru en Bonita hélt sínu striki, spilaði ekkert sérstaklega en rétt slapp inn á LET. Hún lék á 71 71 73 73 74 á úrtökumótinu.
Bonita komst fyrst á LET þ.e. Evrópumótaröð kvenna í fyrra eftir keppni í úrtökumóti í Marokkó, þ.e. sömu völlum og keppt var á nú og því var hún öllum hnútum kunnug. Golf 1 var með kynningu 2012 á Bonitu og má skoða hana með því að SMELLA HÉR: enda hefir ekki mikið breyst hjá Bredenhann, á 1 ári nema hvað hún er komin með gífurlega keppnisreynslu, sem greinilega nýttist henni vel í úrtökumótinu!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
