Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2012 | 19:30

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (17. grein af 34): Alexandra Vilatte

Nú hefst kynning á þeim 3 stúlkum sem deildu 16. sæti á Q-school LET á La Manga fyrr á árinu. Í kvöld byrjum við á að kynna franska kylfinginn Alexöndru Vilatte, en hinar eru Amelía Lewis og Heather Bowie Young.

Alexandra Vilatte fæddist í París 18. janúar 1983 og er því 29 ára. Áhugamál hennar eru fótbolti, en hún er mikill stuðningsmaður franska liðsins Paris Saint Germain. Meðal annarra áhugamála hennar eru auk þess matargerð og að verja tíma með fjölskyldu og vinum.

Alexandra gerðist atvinnumaður í golfi í janúar á þessu ári eftir að ljóst var að hún hefði landað 16. sætinu í Q-school LET.  Hún byrjaði að spila golf 7 ára og var nr. 1 á Evrópulista áhugamanna 2005. Hún spilaði fyrst á LET Access Series sem áhugamaður 2011 í Trophee Preven Murcia and Azores Open.  Alexandra er menntaður lyfjafræðingur.

Hér má sjá skemmtilegt viðtal við Alexöndru sem tekið var af blaðafulltrúa LET Access Series: SMELLIÐ HÉR: