Nýju stúkurnar á LET 2014: Nina Muehl (7/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Það voru 4 stúlkur sem deildu 23. sætinu (voru jafnar í 23.-26. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 yfir pari, 361 höggi: Hannah Ralph, Lucy Andre, Nina Muehl og Karolin Lampert. L
Þýski kylfingurinn Karolin Lampert, hefir þegar verið kynnt og nú verður haldið áfram sem frá var horfið og austurríski kylfingurinn Nina Muehl kynnt, en hún varð í 25. sæti og er komin á Evrópumótaröð kvenna í 1. tilraun. Lokaskor Nínu Muehl var 67 73 70 77 74.
Nina Muehl fæddist 17. janúar 1987 í Vín, Austurríki og er því 26 ára. Hún er dóttir Franz og Manuelu Muehl. Nína hefir átt glæsilegan áhugamannsferil í heimalandi sínu, Austurríki og verið í golflandsliði Austurríkis frá árinu 2001, eða frá því hún var 14 ára.
Meðal hápunkta áhugamannsferilsins er að hún varð austurrískur meistari í holukeppni 2008 og varð í 2. sæti í sömu keppni 2007. Hún varð og í 13. sæti í Scottish Ladies Amateur.
Nína var í 4 ár í East Tennessee State University, sama skóla og Guðmundur Ágúst „okkar“ Kristjánsson, þar sem hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu, með golfliði skólans og lagði stund á viðskiptafræði. Í bandaríska háskólagolfinu vann Nína til ýmissa afreka sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Hún útskrifaðist 2011.
Nú er hún sem sagt komin á LET keppnistímabilið 2014!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

