Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2023 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2023: Kyle Westmoreland (26/50)

Í dag verður sá kynntur sem varð í 25. sæti á Korn Ferry Tour Finals og hlaut þannig kortið sitt á PGA Tour.

Það er Kyle Westmoreland.

Kyle Westmoreland ásamt eiginkonu sinni Erin

Kyle Westmoreland er fæddur 20. september 1991 í Lewisville, Texas og er því 31 árs.

Hann er 1,9 m á hæð og varði háskólaárunum í United States Air Force Academy, þar sem hann var útnefndur karlíþróttamaður ársins, árið 2014 eftir að hafa orðið í  4. sæti í  Mountain West Conference Championships.

Helstu sigrar Westmoreland sem áhugamanns eru:

2011 Service Academy Classic
2013 Jackrabbit Invitational, Gene Miranda Falcon Invite, Patriot All-America

Westmoreland náði niðurskurði 2021 á Opna bandaríska og lauk keppni T-68. Hann var fyrstur frá Air Force Academy til þess að ná þessum árangri. Hann var áður búinn að sigra á úrtökumóti til þess að komast á Opna bandaríska.

Westmoreland er einnig með spilarétt á PGA Tour Canada.

Besti árangur Westmoreland á keppnistímabili Korn Ferry 2022 var T-7 árangur í  AdventHealth Championship.

Hann hlaut PGA Tour kortið sitt fyrir 2022-2023 keppnistímabilið með góðum árangri á Korn Ferry Tour Finals, sem hann endurtók nú aftur fyrir 2023-2024 keppnistímabilið.

Kyle Westmoreland býr í Katy, Texas og á eiginkonu sem heitir Erin.

Í aðalmyndaglugga: Kyle Westmoreland ásamt eiginkonu sinni Erin.