Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Shawn Stefani (40/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.
Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, síðast var kynntur sá sem varð í 1. sæti peningalistans, Sungjae Im frá Suður-Kóreu.
Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Web.com Finals og hlutu þannig þáttökurétt á mótum PGA Tour. Fyrst var kynntur sá sem rétt slapp í hóp þeirra 25 efstu en það var Jim Knous, síðan Fabián Gómez frá Mexíkó, kanadíski kylfingurinn Ben Silverman, bandarísku kylfingarnir Michael Hayes Thompson, Nicholas Lindheim, Wes Roach og Cameron Tringale, Curtis Luck (16. sæti) frá Ástralíu, Dylan Frittelli frá S-Afríku og Sepp Straka frá Austurríki; Stephan Jäger, sem varð í 15. sæti; Roberto Diaz, sem varð í 14. sæti ; Max Homa, sem varð í 13. sæti og Seth Reeves, sem var í 12. sæti.
Í dag verður kynntur sá sem var í 11. sæti á Web.com Tour Finals, en það er Shawn Stefani, sem vann sér inn 80,579 dollara á Web.com Finals.
Shawn Stefani fæddist 2. desember 1981 í Baytown, Texas og er því nýorðinn 37 ára. Í dag býr Stefani í Houston, Texas.
Hann er 1,88 m á hæð og 91 kg.
Stefani var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með Lamar University, þaðan sem hann útskrifaðist 2005.
Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2005 og spilaði á minni mótaröðum í 7 löng ár allt þar til 2012, þegar hann komst á Web.com Tour, þar sem hann sigraði tvívegis.
Fyrsti sigur hans kom í Midwest Classic í ágúst 2012 og sá síðari í október á the Miccosukee Championship sama ár.
Hann varð í 6. sæti á stigalista Web.com Tour og ávann sér kortið sitt á PGA Tour fyrir 2013 keppnistímabilið.
Á lokahring Opna bandaríska 2013 á Merion fór Stefani holu í höggi á 229-yarda (209 metra) 17. holunni, ten þetta var fyrsti ásinn í 18 ár í meistaramóti á vegum bandaríska golfsambandsins, sem haldin voru á Merion.
Hann notaði 4-járn við ásinn og högg hans bompaði niður halla til vinstri á flöt og rúllaði töluverða vegalengd í bollann.
Besti árangur Stefani í risamóti er einmitt T-59 árangur í Opna bandaríska 2013 og svo komst hann í gegnum niðurskurð og varð í 68. sæti í PGA Championship.
Hér má sjá viðtal við Stefani eftir að ljóst varð að hann hefði unnið kortið sitt aftur á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2017-2018, mótaröð þeirra bestu, en í viðtalinu táraðist hann SMELLIÐ HÉR:
Honum tókst síðan að halda sér á PGA Tour með 11. sætinu í Web.com Finals 2018 og spilar nú 2019 annað árið samfellt á PGA Tour.
Stefani er í 300. sæti heimslistans.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
