Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: K.H. Lee (21/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 5. sæti peningalistans, K.H. Lee frá S-Kóreu Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

K.H. Lee (K.H. er stytting á Kyoung-hoon ) fæddist 24. ágúst 1991 og er því 27 ára.  Lee er 1,78 á hæð og 82 kg.

Lee gerðist atvinnumaður í golfi 2010.

Hann hefir síðan þá spilað bæri á japanska PGA Tour og Web.com Tour.

Á 2018 keppnistímabilinu á Web.com Tour varð K.H. Lee 3 sinnum í 2. sæti í mótum og það færði honum 5. sætið á peningalistanum og þar með kortið á bestu karlmótaröð heims í golfinu, PGA Tour.