Thomas Aiken. Nýju strákarnir á PGA Tour 2016: Thomas Aiken (5/50)
Í fyrrahaust voru 50 „strákar“ sem komust á PGA Tour þ.e. þeir 25 sem voru efstir í 2. deildinni Web.com og svo 25 aðrir sem keppa á sérstöku 4 móta úrtökumótaröð Web.com Finals alls 50.
Sá sem varð í 46. sætinu og rétt slapp ínn á PGA Tour er Thomas Aiken.
Thomas Edward Aiken fæddist 16. júlí 1983 í Jóhannesarborg, Suður-Afríku og verður því 30 ára á árinu. Hann á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar en þeir Adam Scott og Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri GSG.
Eftir árangursríkan áhugamannsferil, þar sem hann var m.a. áhugamaður ársins í Suður-Afríku 2001 gerðist Aiken atvinnumaður í golfi í byrjun árs 2002.
Árið 2004 vann hann þrívegis á Sunshine Tours Winter Swing. Næsta ár var hann á toppi peningalistans í Winter Swing-i Sólskinstúrsins og bætti við 2 sigrum.
Árið 2007 spilaði Aiken á Nationwide Tour (nú Web.com Tour) en komst aðeins 3 sinnum í gegnum niðurskurð og besti árangurinn var 13. sætið á the Price Cutter Charity Championship.
Hann náði að tryggja sér kortið sitt á Evrópumótaröðinni 2008 í gegnum Q-school og varð í 131. sæti á peningalistanum, en besti árangurinn var 13. sætið á Alfred Dunhill Links Championship, sem var eini árangurinn á topp-30, þ.e. meðal 30 efstu.
Á 2009 keppnistímabilinu varð Aiken í fyrsta sinn meðal 10 efstu á Evrópumótaröðinni þegar hann varð T-4 í Alfred Dunhill Championship, eftir að hafa verið í forystu fyrir lokadaginn eftir glæsi 3. hring, þar sem hann var með skor upp á 61 högg. Þetta ásamt öðrum skiptum sem hann varð meðal efstu 10 á mótum, þ.á.m. þegar hann sigraði á Platinum Classic það ár, varð til þess að Aiken lauk 2008 tímabilinu í 3. sæti stigalistans.
Fjöldi topp-10 árangra á Evrópumótaröðinni 2009, þ.á.m. í einu risamótanna og í einu heimsmótinu, leiddi til þess að Aiken fékk þátttökurétt í Dubai World Championship, þrátt fyrir að vera aðeins með status að hluta á túrnum. Hann lauk tímabilinu í 46. sæti á Race to Dubai (peningalista Evrópumótaraðarinnar).
Aiken hefir nokkrum sinnum tekið þátt í góðgerðarmótum Gary Player.
Í maí 2011 vann Aiken fyrsta mótið sitt á Evrópumótaröðinni, the Open de España, átti tvö högg á Anders Hansen. Hann tileinkaði sigurinn Seve Ballesteros sem dó daginn áður (7. maí 2011). „Ég vil algjörlega tileinka honum sigurinn, þar sem þetta er „heima Opna mótið“ hans og það sem hann lét eftir sig til aðdáenda sinna heima við og golfíþróttarinnar,“ sagði Aiken.
Þann 17. mars 2013 vann Aiken síðan 2. sigur sinn á Evrópumótaröðinni; Avantha Masters sem fram fór í Jaypee Garden í Delhi á Indlandi. Þar átti hann 3 högg á næsta mann, heimamanninn Gaganjeet Bhullar.
Alls á Thomas Aiken því að baki 3 sigra á Evrópumótaröðinni og 8 á Sólskinstúrnum suður-afríska og 1 sigur á Asíutúrnum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
