Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2014 | 13:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Scott Pinckney (25/50)

Scott Pinckney er sá 27. í röðinni af 50 til þess að hljóta kortið sitt á PGA Tour á keppnistímabilinu 2014-2015.

Scott Pinckney fæddist í Orem, Utah þann 13. mars 1989 og er því 25 ára. Hann hefir spilað á Evrópumótaröðinni, Challenge Tour, Web.com Tour og nú bestu mótaröð heims…. PGA Tour.

Áhugamnnsferillinn

Pinckney var eins og áður segir fæddur í Orem, Utah. Hann var í Boulder Creek High School í Anthem, Arizona og síðan í Arizona State University á árunum 2008 til 2011. Hann sigraði árið 2010  á Trans-Mississippi Amateur Championships í Denver Country Club eftir að hafa verið á skori upp á 6 undir pari, 204 höggum 69-66-66) og sigra Kevin Tway á 2. holu bráðabana.

Sem áhugamaður spilaði Pinckney á Opna bandaríska árið 2011, eftir að hafa verið jafn öðrum í undanúrtökumótinu.  Pinckney spilaði hringina 2 sem hann lék í risamótinu á 79 og 75 og komst síðan ekki í gegnum niðurskurð.

Atvinnumannsferillinn

Pinckney gerðist ativnnumaður árið 2011. Afganginn af árinu 2011 spilaði hann á nokkrum Challenge Tour mótum. Hann spilaði líka á Nordea Masters þar sem hann varð T-35 og the Irish Open, þar sem hann fór ekki í gegnum niðurskurð. Hann lauk keppni T-24 í  European Tour Qualifying School og vann sér inn kortið sitt fyrir 2012 keppnistímabilið.  Hann náði aðeins niðurskurði eftir 4. hring en síðasti hringurinn þar sem hann spilaði á 65 höggum, lyfti honum úr 66. sætinu í 24. sætið.

Besti árangur Pinckney árið 2012 var T-19 í the Sicilian Open. Hann komst á Opna breska gegnum undanúrtökumótið í  Championship West Lancashire, þar sem hann átti lokahring upp á 64 högg og hann chippaði beint ofan í holu tvívegis utan flatar og lauk hringum á 7 undir pari á seinni 9.  Hann varð þar næst að ganga í gegnum bráðabana til þess að tryggja sæti sitt á Opna breska.  Pinckney var á 2-undir pari, 68 höggum á 1. hring, sem hann fylgdi eftir með hring upp á 7 yfir pari, 77 höggum og missti og komst í kjölfarið ekki í gegnum niðurskurð.

Pinckney spilaði á Web.com Tour árið 2014 eftir að hafa hlotið kortið sitt á túrnum í Q-school, þ.e. úrtökumóti fyrir Web.com Tour.  Hann varð í 27. sæti í Web.com Tour Finals og vann sér inn PGA Tour kortið sitt fyrir 2014-2015 keppnistímabilið, eins og sagði í upphafi.

Einkalífið

Pinckney er vinur Rory McIlroy, en þeir tveir hittust þegar þeir voru 8 ára  í the Doral Junior Publix, unglingamóti sem haldið er ár hvert í Miami, Florida. Fjórum árum síðar bjór Rory McIlroy hjá Pinckney fjölskyldunni í  Utah í 3 mánuði og spilaði á þeim tíma í fjölmörgum unglingamótum.

Umboðsskrifstofa Pinckney er ISM (þ.e. International Sports Management).