Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2014 | 20:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: John Curran (28/50)

John Curran var sá 24. til þess að hljóta kortið sitt á PGA Tour keppnistímabilið 2014-2015.

John Curran er fæddur 17. febrúar 1987 í Hopkinton, Massachusetts og er því 27 ára í ár.

Curran var í Hopkinton (Mass.) High School, og ásamt Keegan Bradley unnu þeir tveir liðakeppnina á ríkismeistararmótinu í Massachusetts.

Systir Curran, Jessica keppti í há- og þrístökki í sama háskóla og hann þ.e. University  of Massachusetts.

Síðan spilaði Curran í bandaríska háskólagolfinu í 4 ár; Hann útskrifaðist árið 2009 með gráðu í human and organizational developement.

Sem stendur er Curran nr. 280 á heimslistanum.

Hér eru ýmsar aðrar upplýsingar um Curran:

Ef spila ætti lag á 1. teig fyrir Curran myndi hann velja lagið  „Stockholm Syndrome“ með Muse.

Fyrsta golfminning Curar er að spila á Pepsi Little Peoples golf tournament og ferðast á mótið með pabba sínum.

Ef Curran væri ekki kylfingur myndi hann gjarnan vilja vera listamaður eða umboðsmaður kylfinga.

Uppáhaldsgolfvöllur Curran er Wannamoisett CC í Rhode Island, Bandaríkjunum.

Sá völlur sem Curran myndi mest langa til að spila á er Carnousti í Skotlandi.

Uppáhalds háskólalið Curran eru the Vanderbilt Commodores, en uppáhaldsatvinnumannaliðið er Boston Bruins

Uppáhalds app-ið er Altitude Meter

Uppáhaldsvefsíður Curran eru  chive.com and barstoolsports.com

Uppáhalds skemmtikraftar Curran eru Muse og Mumford and Sons

Uppáhaldsbók Curran er Private Parts eftir Howard Stern.

Uppáhaldsíþróttamaður Curran er hokkíleikmaðurinn Shawn Thornton.

Uppáhaldsréttur Curran er Chicken Parmigiana.

Ef hann gæti skipt um hlutverk við einhverja persónu í 1 dag þá myndi það vera Johnny Drama (Hann er fyrirmyndin mín)

Í draumaholli Curran myndu auk hans sjálfs vera…. pabbi Curran, Johnny Drama og Ben Hogan.

Atriði sem ekki margir vita um Curran er að honum þykir Graffiti og „street art“ flott.

Meðal þess sem honum langar til þess að gera er að fara til Tokyo og mála graffiti á lestir þar.

Góðgerðarsamtök sem Curran styður eru Child Melanoma Awareness vegna þess að pabbi hans dó úr melanoma (ein tegund krabbameins) árið 2012.

Hægt er að fylgjast (followa) John Curra á Twitter en heimilisfang hans þar er @joncurrangolf.