Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2014 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Fabián Gómez – (3/50)

Fabián Gómez varð í 48. sætinu af þeim sem komust á PGA Tour, keppnistímabilið 2014-2015.

Hann er fyrsti „útlendingurinn“ sem kynntur verður hér af strákunum 50, þ.e. ekki frá Bandaríkjunum en Fabian er frá Argentínu og sá eini frá heimalandi sínum sem komst á PGA Tour 2015!

Fabian Gomez fæddist í Chaco, Argentínu 27. október 1978 og er því 35 ára.

Fabian hefir sigrað þrívegis á  Tour de las Americas, og eins 3 sinnum á argentínsku TPG Tour. Hann varð í 2. sæti á  Chaco Open árið 2006, á TLA Players Championship árið 2006 og Venezuela Open árið 2007. Hann varð í efsta sæti á stigalista  TPG Tour árið 2009.

Gómez vann fyrsta og eina Nationwide Tour sigru sinn árið 2010 en það var Chitimacha Louisiana Open. Hann varð í 12. sæti það ár á peningalistanum og hlaut kortið sitt í fyrsta sinn á PGA Tour árið 2011.  Það ár var besti árangur hans 7. sætið á  Puerto Rico Open, 15. sætið á St. Jude Classic og 18. sætið á Viking Classic.

Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé og árið 2012 var hann aftur kominn á Nationwide Tour. Hann varð í 2. sæti á Chitimacha Louisiana Open, 7. á  the South Georgia Classic og í 10. sæti á Winn-Dixie Jacksonville Open. Hann varð í 55. sæti á Nationawide Tour peningalistanum. Seinna varð hann síðan í 10. sæti í PGA Q School og vann sér inn kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2013.

Árið 2013 varð Gómez í 2. sæti á Puerto Rico Open, 16. sæti á RBC Canadian Open og í 21. sæti á AT&T National. Hann varð í 133. sæti á peningalista PGA tour og missti síðan aftur kortið sitt á PGA Tour.

Hann var því aftur kominn á Web.com Tour  keppnistímabilið 2014 og þar varð hann í 2. sæti á Stonebrae Classic, í 4. sæti á United Leasing Championship og í 10. sæti á the Albertsons Boise Open. Hann varð í 23. sæti á peningalista Web.com Tour og vann þannig aftur kortið sitt keppnistímabilið 2014-2015 á PGA Tour.