Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Carlos Sainz Jr. – (2/50)
Carlos Sainz Jr. er fæddur 7. nóvember 1985 í Chicago og því 28 ára.
Carlos var í Larkin High School í úthverfi Chicago, þ.e. Elgin, Illinois.
Hann gerðist atvinnumaður í golfi eftir að hann útskrifaðist frá University of Mississippi 2010, en hann hafði spilað golf í bandaríska háskólagolfinu 4 ár þar á undan.
Besti árangur Carlos Sainz á Web.com Tour er að verða T-2 í Price Cutter Charity Championship presented by Dr Pepper nú á þessu ári, 2014. Það dugði þó til þess að hann var í 74. sæti þeirra 75 efstu á peningalista Web.com Tour, sem fengu að spila í Web.com Tour Finals mótaröðinni og eftir 4. og lokamótið í þeirri mótaröð var hann í 49. sæti af 50 þ.e. meðal hinna heppnu sem hlutu kortið sitt á PGA Tour eftir að hafa aðeins verið 1 keppnistímabil á Web. com Tour. Sainz er sigurlaus bæði á Web.com Tour og hvað þá PGA Tour og svo sannarlega nýliði á bestu mótaröð heims.
Sainz sagði eftir að kortið var í höfn: „Þetta er enn svolítið súrrealískt, en ég er viss um að ég á eftir að jafna mig næstu daga, en þetta er svo sannarlega draumur sem er að rætast og ég er virkilega heppinn að minn tími er kominn.“
2014-15 PGA Tour keppnistímabilið hefst 6. október í Napa, Kaliforníu með Frys.com mótinu.
Meðal áhugamála Carlos eru veiðar, stangveiði, fótbolti, tennis og borðtennis.
Sem stendur er Sainz nr. 510 á heimslistanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
