Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2014 | 10:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Bud Cauley (47/50)

Sá sem varð í 4. sæti á  Web.com Tour finals var Bandaríkjamaðurinn Bud Cauley.

Bud Cauley fæddist 16. mars 1990 og er því 24 ára.

Pabbi hans Bill, kynnti Bud fyrir golfinu þegar Bud var aðeins 5 ára.

Hann gekk ekki í skóla til þess að hann gæti æft golf.

Meðal hápunkta á ferli Cauley er að vera hluti af sigurliði Bandaríkjanna í Walker Cup árið 2009.

Meðal uppáhaldskvikmynda Cauley eru „Good Will Hunting“ og „Wedding Crashers.“

Uppáhaldstónlistarmenn Cauley eru Red Hot Chili Peppers

Cauley finnst gaman að fylgjast með íþróttamönnunum Peyton Manning, Kobe Bryant and Adrian Peterson

Fylgjast má með Cauley á  Twitter en Twitterfangið er @budcauley

Uppáhöldsöpp Cauley eru Twitter, Shazam og Yahoo Sports

Meðal þess sem alltaf má finna í poka Cauley eru sólkjarnafræ og orkustangir.

Draumaholl Cauley eru auk hans sjálfs: Megan Fox, Carrie Underwood og Jack Nicklaus

Meðal þess sem hann myndi gjarnan vilja gera í lífinu er að kafa í Great Barrier Reef, Ástralíu.

Uppáhaldssögn Cauley er: „Sigurvegarar gefast aldrei upp og þeir sem gefast upp sigra aldrei (á ensku:
„Winners never quit, and quitters never win.“

Meðal góðgerðarmála sem Cauley styður eru Birdies for the Brave.

Pabbi Cauley og afi vour báðir í bandaríska sjóhernum  og mamma Cauley er lestrarkennari í grunnskóla.