Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Alex Prugh (10/50)
Alex Prugh er sá 41. sem af 50 sem hlaut kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2014-2015. Hann varð í 11. sæti á peningalista Web.com í fyrra og spilaði því á PGA Tour keppnistímabilið 2013-2014 en þurfti að fara í Web.com Finals mótaröðinni, til þess að endurnýja keppnisréttindi sín, en þar spila allir þeir sem eru 126-200 á peningalista PGA Tour og var Prug einn af þeim í ár.
Alexander Prugh fæddist 1. september 1984 í Spokane, Washington og varð því 30 ára fyrir u.þ.b. mánuði síðan. Prugh var í Joel E. Ferris menntaskólanum, þar sem hann var í golfliðinu. Hann spilaði síðar í bandaríska háskólagolfinu með University of Washington, þars em hann var þrefaldur varsity Pac-10-All-Conference. Árið 2010 kvæntist Alex núverandi konu sinni, Katie.
Katie og Alex Prugh
Atvinnumannsferill
Frá því að Prugh gerðist atvinnumaður árið 2007 hefir hann varið mestum tíma við golfleik á Nationwide Tour (nú Web.com Tour) þar sem hann hefir sigrað 1 sinni þ.e. á Michael Hill New Zealand Open, árið 2009.
Árið 2009 varð Prugh í 16. sæti á peningalista Nationwide Tour og vann sér í fyrsta sinn keppnisrétt á PGA Tour 2010. Aðeins í 3. móti sínu á PGA var Prugh í forystu á lokahring Bob Hope Classic. Mikið rigningarveður varð til þess að miklar tafir urðu og þegar aftur var farið að spila missti Prugh niður forystuna og hafnaði einn í 5. sæti og hlaut í verðlaun $200,000. Hann varð líka í 5. sæti á næsta móti Farmers Insurance Open og í 10. sæti á the Northern Trust Open.
Besti árangur Prugh er T-2 árangur á Frys.com Open, árið 2010.
Prugh var sem segir í 41. sæti af þeim sem unnu sér inn keppnisrétt og kortið sitt á PGA Tour 2015.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

