Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Will Wilcox (19/25)
Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 7. sæti, en það er Will Wilcox.
Wilcox tók ekki þátt í Web.com Tour Finas eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og bætti því stöðu sína ekkert.
Wil Wilcox fæddist í Birmingham, Alabama 2. júní 1986 og er því einn af þeim kylfingum, sem eiga afmæli í dag – er 28 ára í dag!!! Hann var í University of Alabama, Birmingham; en flutti sig síðan yfir til Clayton State, í Georgíu en á báðum stöðum lék með hann með golfliði skólans og gerðist síðan atvinnumaður í golfi 2009.
Sigrar Wilcox sem atvinnumanns eru tveir: Dakota Dunes Open á kanadíska PGA og 2013 South Georgia Classic Presented by First State Bank and Trust Company, sem vannst í fyrra, 2013. Sem stendur er Wilcox nr. 348 á heimslistanum.
Ýmislegt um Wilcox:
Hann segir mömmu sína, Kim Wilcox og Rich Smith þjálfara sína.
Wilcox segir það að spila í Opna bandaríska einn hápunkta sinna í golfinu sem og það að klára háskólapróf utan golfsins.
Uppáhaldsgolfvellir hans eru í Cascata GC í Las Vegas og Carambola G&CC í St. Croix og eins myndi hann langa til að spila Augusta National
Hann notar aðeins 25 centa peninga til þess að merkja bolta sína
Hann ferðast aldrei án iPodsins síns
Uppáhalds lið hans í Bandaríkjunum eru Auburn Tigers og Atlanta Falcons
Uppáhaldssjónvarpsþættir Wilcox eru „Seinfeld“ og „South Park,“
„Pulp Fiction“ er uppáhaldskvikmynd Wilcox
Uppáhaldsskemmtikraftar eru Sublime og Marshall Tucke
Uppáhaldsmatur Wilcox er Spaghetti
Uppáhaldsíþróttamaður hans er Tiger Woods
Uppáhaldsborgir Wilcox eru Los Angeles og Calgary og uppáhaldsfrístaður Wilcox er St. Croix
Twitter fangið hans er willwilcox golf…
Uppáhalds öpp Wilcox eru Navigon og Rainstick
Nestið í poka Wilxox er Chex Mix og bananar
Draumahollið hans eru hann sjálur auk Jack Nicklaus, Woods og Boo Weekley
Wilcox segir að enginn viti að hann sé með ofnæmi fyrir ölu á golfvelli.
Meðal þess sem honum langar til að gera er að spila á PGA Tour (náði því keppnistímabilið 2013-2014)
Uppáhaldsmálsháttur hans er „Dig deep, believe in yourself.
Wilcox kennir krökkum og ungmennum í golfprogrammi heima í klúbbnum sínum í Alabama
Wilcox segir að hann hafi byrjað í golfi þar sem hann fór í vinnuna með mömmu sinni, sem er golfkennari, á hverjum degi sem strákur.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

