Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Tim Wilkinson (16/25)
Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 10. sæti, en það er Tim Wilkinson.
Wilkinson lék eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og varð í 38. sæti, (af 50) og bætti því stöðu sína ekkert.
Timothy David Wilkinson fæddist 26. júlí 1978 í Palmerston North, Nýja-Sjálandi og er því 35 ára.
Hann varð ný-sjálenskur meistari í höggleik árið 2000 og gerðist atvinnumaður 2003.
Wilkinson var kominn á Nationwide Tour 2005, en vann sér ekki inn nægilega mikla peninga til þess að komast á PGA Tour. Það tókst hins vegar með því að fara í Q-school, en hann varð meðal efstu 25 þar árið 2007.
Wilkinson átti nokkuð gott nýliðaár, en hápunktar þess voru að hann varð í 3 sæti á Zurich Classic of New Orleans og varð T-2 á the Valero Texas Open, þar sem hann var 2 höggum á eftir Zach Johnson. Hann vann sér inn yfir 1 milljón dollara í verðlaunafé og var í 92. sæti á peningalistanum í lok árs 2008.
Árið 2009 spilaði Wilkinson til úrslita á Verizon Heritage en lauk keppni T-6. Meiðsli í þumalputta hrjáðu hann og urðu að lokum til þess að hann gat ekki spilað og hann komst á undanþágu vegna veikinda og spilaði því líka á PGA Tour 2010. Í júní hafði hann fullnýtt undanþágu sína og ekki unnið sér inn nægilega mikið verðlaunafé til þess að halda keppnisrétti sínum á PGA Tour.
Wilkinson var því aftur kominn á Nationwide Tour 2011. Hann varð s.s. segir í 10. sæti á peningalista Nationwide 2013 (sem nú heitir Web.com Tour) og er aftur farinn að spila á PGA Tour 2014.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
