Jeff Maggert
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2012 | 20:30

Nýju strákarnir á PGA Tour 2012: nr.15 – Jeff Maggert

Jeffrey (Jeff) Allan Maggert fæddist 20. febrúar 1964 í Colombía Missouri og varð því 48 ára í hittifyrradag. Hann ólst upp á golfvelli í The Woodlands, í Texas þar sem hann gekk í McCullough menntaskólann. Síðan lá leiðin í Texas A&M University þar sem hann var All-American í golfliði skólans sem hann spilaði með öll ár sín þar.

Árið 1986 gerðist Maggert atvinnkylfingur. Hann var valinn kylfingur ársins á Ben Hogan túrnum (nú Nationwide Tour) árið 1990 og hefir verið á PGA Tour allt frá árinu 1991.

Hann hefir 3 sinnum unnið á PGA Tour og 15 sinnum lent í 2. sæti á PGA Tour auk þess sem hann hefir unnið fjölmörg mót utan túrsins. Hann hefir verið í Ryder bikars liði Bandaríkjanna 3 sinnum og spilað í forsetabikarnum 1 sinni.

Maggert hætti þátttöku í The Players Championship árið 2008 eftir aðeins 1 hring, þegar hann frétti að eldri bróðir hans, Barry, hefði látist í flugslysi í Cilpin County, Colorado.

Maggert er eini kylfingurinn sem hefir fengið albatross oftar en 1 sinni á risamóti (eitt sinn í Masters 1994 og eitt sinn í Opna breska 2001).  Hann hefir hæst komist á topp-20 á heimslistanum.

Maggerst spilar 2012 keppnistímabilið á læknisundanþágu eftir að hafa gengist undir uppskurð á öxl í júní s.l.

Á keppnistímabilinu 2011 gat hann aðeins keppt í 18 mótum, en náði þó að komast í gegnum niðurskurð 6 sinnum.  Hann fór í Q-school aðallega til að bæta statusinn sinn, sem honum tókst með 13. sætinu og hann er þegar byrjaður að láta að sér kveða á túrnum varð m.a. í 5. sæti á Humana Challenge í s.l. mánuði og hirti vænan tékk upp á $224,000.00 (tæpar 27 milljónir íslenskra króna).

Heimild: Wikipedia