
Nýju strákarnir á PGA Tour 2012: nr. 9 – Daníel Summerhayes
Daníel Summerhayes fæddist 2. desember 1983 í Farmington, Utah og er því 28 ára. Hann deildi 18. sætinu í PGA Q-school nú s.l. desember ásamt 5 öðrum kylfingum þeim Patrick Sheehan, Scott Dunlap, Greg Owen og síðan Will Claxton og Edward Loar sem þegar hafa verið kynntir.
Daníel kemur úr þekktri golffjölskyldu í Bandaríkjunum Hann byrjaði að spila golf fyrir tilstuðlan pabba síns.
Eftirminnilegasta jólgjöf segir hann hafa verið Ping Eye-2 beryllium járnasett, sem hann fékk þegar hann var 12 ára.
Eldri bróðir Daníel, Boyd spilaði bæði á PGA Tour og Nationwide Tour og Daníel segir bróður sinn og pabba fyrirmyndir sínar. Frændi hans Bruce Summerhays spilaði á Champions Tour og frænka hans Carrie Roberts spilaði á LPGA og er nú golfþjálfari hjá BYU. Hann á 20 frænkur og frændur og segir að þ.a.l. sé ekkert mál að skipta um bleyju á syni sínum, hann fái góða aðstoð.
Daníel var ríkismeistari Utah í körfubolta meðan hann var í Davis High School (Kaysville, UT). Hann spilar líka gjarnan borðtennis.
Daníel er mormóni eins og svo margir í Utah og fór í ferð að boða boðskapinn á vegum þeirra og bjó 2 ár í Santiago, Chile og talar þar af leiðandi góða spænsku.
Þar sem hann talar svo fína spænsku var hann í „Latin Federation“ á Nationwide Tour, en í þeim félagsskap eru m.a. Miguel Angel Carballo, Sebastian Fernandez, Fabian Gomez og Esteban Toledo. Hann skilur Chile slangur fullkomlega en á erfiðar með mállýskur í Argentínu og Mexíkó.
Hann segir að mesta afrekið í golfinu sé sigur hans 2007 á Nationwide Children’s Hospital Invitational. Hann notar alltaf appelsínugult boltamerki.
Uppáhaldsveitingastaður hans er Café Rio í Salt Lake City, Utah. Uppáhaldsvefsíður hans eru espn.com og pgatour.com.
Uppáhaldslið hans er Utah Jazz. Uppáhaldsfrístaður hans er Monterey í Kaliforníu og Hawaii. Er með þurrkað nautakjöt (ens. beef jerky) og blöndu af hnetum og þurrkuðum ávöxtum (ens.: trail mix ) í pokanum þegar hann spilar.
Heimild: pgatour.com
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open