Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2022 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA 2023 (8/50): Tyson Alexander

Nú verður fram haldið að kynna þá 25 kylfinga, sem hlutu kortið sitt á PGA Tour eftir að hafa orðið í einu af efstu 25 sætunum eftir reglulega tímabilið í 2. deildinni, þ.e. Korn Ferry Tour.

Sá áttundi, sem kynntur verður er Tyson Alexander en hann varð í 18. sæti.

Tyson Alexander er fæddur 13. júlí 1988 í Gainsville, Flórída og er því 34 ára.

Hann er 1.85 og 79 kg.

Tyson er af mikilli golffjölskyldu: Pabbi hans Buddy Alexander sigraði áU.S. Amateur Championship árið 1986 og var golfþjálfari Florida Gators í 27 ár, en liðið sigraði m.a. í NCAA Division I árin 1993 og 2001.  Afi Tyson;
Skip Alexander, var í Ryder Cup liðum Bandaríkjanna 1949 og 1951 og sigraði 3 sinnum á PGA Tour.  Ferill hans endaði snögglega í flugslysi, þar sem hann komst einn af.

Tyson Alexander útskrifaðist frá University of Flórída 2010, með gráðu í íþróttafræði. Hann spilaði með golfliði skólans í bandaríska háskólagolfinu.

Hann gerðist atvinnumaður í golfi strax eftir útskrift og spilaði fyrst um sinn á minni mótaröðum; t.a.m. NGA, þar sem hann á tvo sigra í beltinu 2012 á Killearn Country Club Classic og 2014 Ocala/Marion County Classic.

Hann var á suður-ameríska PGA (PGA TOUR Latinoamérica) frá árinu 2017 og á einn sigur á þeirri mótaröð þ.e. Costa Rica Classic 2018; var kominn á Korn Ferry 2019 og á tvo sigra á þeirri mótaröð, þ.e. á Veritex Bank meistaramótinu 2021 og 2022  og mun næsta keppnistímabil (2022-2023) spila á PGA Tour.

Ýmislegt um Tyson Alexander:

  • Hann er mikill aðdáandi allra Florida Gators liða.
  • Meðal uppáhaldsgolfvalla hans er Royal Portrush Golf Club á N-Írlandi, þar sem hann var í sigurliði Bandaríkjanna í Arnold Palmer Cup 2010 og Point O’ Woods Golf and Country Club í Benton Harbor, Michigan, þar sem hann komst í fjórðungsúrslit í Western Amateur 2007.
  • Hann spilaði körfubolta í menntaskóla
  • Meðal uppáhaldssjónvarpsþátta hans eru: Ozark, Succession, og Yellowstone.