Nýju strákarnir á PGA 2020: Zac Blair (16/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.
Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.
Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.
Í dag verður kynntur sá kylfingur, sem varð í 10. sæti eftir reglulega tímabilið, Zac Blair, sem var með 1272 stig á stigalista Korn Ferry Tour.
Zac Blair fæddist 20. ágúst 1990 og er því 29 ára.
Hann spilaði golf í bandaríska háskólagolfinu, með liði Brigham Young University í Salt Lake City, Utah og útskrifaðist þaðan nú í vor með gráðu í skemmtunar/afþreyingastjórnun (recreational management).
Eftirfarandi upplýsingar má lesa um Zac Blair á vefsíðu PGA Tour:
Blair Zac var í Fremont High School í Plain City, Utah.
Pabbi hans, James spilaði golf með golfliði BYU (Brighton Young University) 1974-1977 og spilafélagar hans voru PGA Tour leikmennirnir Mike Brannan, John Fought, Pat McGowan, Jim Nelford og Mike Reid. Hann (pabbi Zac) lék líka í 22 leikjum á PGA TOUR á árunum 1981 – 2002, þ.á.m. 13 árið 1984.
Fyrsta golf minning Zac var að draga fyrir pabba sinn.
Helsta skemmtun Zac fyrir utan golfið er að vera á skíðum í Park City, Utah.
Uppáhaldsgolfvöllur sem Zac hefir spilað er Oakmont CC.
Uppáhaldslið Zac eru BYU og the New England Patriots.
Uppáhaldsíþróttamaður er Tom Brady, sem hann myndi gjarnan vilja skipta um hlutverk við til þess að spila „NFL leik“ í einn dag.
Uppáhaldssjónvarpsþættir Zac eru „Dexter“ og „Homeland,“ uppáhaldsbókin eru allar „Harry Potter“ bækurnar og uppáhaldskvikmyndir er „Forrest Gump“ og „Remember the Titans“
Uppáhaldsskemmtikraftur Zac er Eminem
Uppáhalds orlofsstaður Zac er norðurströnd Hawaii
Í draumaholli Zac myndu vera pabbi hans, Tiger og Brady
Aðspurður hvort hann gæti nefnt eitthvað sem flestallir vissu ekki um hann svaraði Zac að hann safnaði Lego kubbum.
Mottó Zac er: „Big-time players make big-time putts.“ (Stórir kylfingar setja niður stórfengleg pútt)
Ef spila ætti lag fyrir kylfinga þegar þegar ganga á 1. teig (t.d. eins og gert er fyrir boxara þegar þeir fara í hringinn) þá myndi lag Zac vera My First Song“ með Jay-Z
Twitterfang Zac Blair er: @z_blair.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
