Nýju strákarnir á PGA 2020: Tyler Duncan (39/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.
Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Korn Ferry Tour Finals og fengu kortin sín þannig.
Í dag verður kynntur sá sem varð í 12. sæti á Korn Ferry Tour Finals en það er Tyler Duncan, sem var með 283 stig.
Tyler Duncan fæddist 13. júlí 1989 í Columbus, Indiana í Bandaríkjunum og er því 30 ára.
Hann er 1,70 m á hæð og 66 kg.
Tyler Duncan spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Purdue háskóla þaðan sem hann útskrifaðist 2012 með gráðu í viðskiptafræði (Business management).
Sama ár (2012) gerðist Duncan atvinnumaður í golfi.
Ýmsir fróðleiksmolar um Duncan:
*Hann var í Columbus North High School.
*Fyrsta golfminning hans er að hafa verið í golfbíl með afa og ömmu ásamt 3-tré, 8-járni og pútter.
*Uppáhaldsatvinnumannalið í Bandaríkjunum eru Indianapolis Colts, Denver Broncos og Indiana Pacers.
*Myndi vilja skipta um hlutverk við Tiger Woods til þess að vita hvernig það er að vera bestur í heimi. Hann hefir hitt Tiger í Isleworth G&CC.
*Draumaholl Duncan eru: Tiger, afi hans og Bobby Knight.
*Frændi Tyler Duncan, Andrew Johnson, sigraði í móti á Web.com Tour árið 2005.
Duncan hefir spilað á Web.com Tour frá árinu 2016 og mun nú spila meðal hinna bestu á PGA Tour á 2017-2018 keppnistímabilinu.
Helstu áhugamál Tyler Duncan utan golfsins eru Netflix og lyftingar.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
