Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Ryan Brehm (19/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.

Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.

Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.

Í dag verður kynntur sá kylfingur, sem varð í 7. sæti eftir reglulega tímabilið, Ryan Brehm sem var með 1397 stig á stigalista Korn Ferry Tour.

Ryan Brehm fæddist 5. apríl 1986 í Mount Pleasant, Michigan, í Bandaríkjunum og er því 33 ára.

Hann er fremur hávaxinn 1,93 m á hæð og 99,8 kg.

Hann lék í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Michigan State University. Á háskólaárum sínum sigraði Brehm 5 sinnum í einstaklingskeppnum og var potturinn og pannan í því að liðið komst þrívegis í Big Ten Championship.

Brehm útskrifaðist 2008 frá MSU og gerðist atvinnumaður í golfi það ár. Fyrst um sinn var hann aðstoðarþjálfari MSU háskólaliðsins. Meðal móta sem Brehm hefir sigrað í eru:

2009 Michigan Open
2010 Michigan Open
2014 Michigan Open

Síðan var Brehm á PGA Tour Canada árin 2014 og 2015. Besti árangur hans þar var T-2 á Great Waterway Classic árið 2015.

Brehm var kominn á undanfara Korn Ferry Tour (Web.com Tour) árið 2016, og sigraði á lokamóti reglulega tímabilsins þ.e. á the WinCo Foods Portland Open. Með þessum sigri varð hann í 4. sæti og komst í fyrsta skiptið á PGA Tour árið 2017.

Honum gekk ekki nógu vel og var aftur kominn á Korn Ferry Tour 2018-2019, þar sem hann sigraði í einu móti 7. júlí eftir bráðabana við Tim Wilkinson þ.e. á LECOM Health Challenge.  Það er þessum sigri að þakka að hann varð í 7. sæti á stigalista eftir reglulega tímabilið og er aftur kominn á PGA Tour.