Nýju strákarnir á PGA 2020: Rhein Gibson (13/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.
Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.
Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.
Í dag verður kynntur sá kylfingur, sem varð í 13. sæti eftir reglulega tímabilið, Rhein Gibson, sem var með 1142 stig á stigalista Korn Ferry Tour.
Rhein Gibson fæddist 1. febrúar 1986 í Lismore, Ástralíu.
Hann er fremur hávaxinn 1,88 m á hæð og 82 kg.
Gibson var fjórfaldur NAIA All-American í Oklahoma Christian University, þar sem hann lék í bandaríska háskóla- golfinu.
Þann 12. maí 2012 spilaði Gibson hring upp á 16 undir pari, 55 högg, í River Oaks golfklúbbnumí Edmond, Oklahoma og komst þar með í heimsmetabók Guinness.
Gibson náði niðurskurði á Opna breska 2014, en á 3. hring spilaði hann með Tiger Woods og Jordan Spieth. Hann varð í 72. sæti í þessu fyrsta risamóti sínu.
Í desember 2014 varð hann í 4. sæti eftir á úrtökumóti fyrirl Web.com Tour (undanfara Korn Ferry Tour) og ávann sér þannig keppnisrétt á þeirri mótaröð keppnistímabilið 2014-2015. Árið 2015 varð hann í 33. sæti eftir reglulga tímabið og hlaut í 1. sinn keppnisrétt á PGA Tour keppnistímabilið 2015-2016.
Gibson varð í 199. sæti á FedEx Cup og í 30. sæti á peningalista Web.com Tour, en einn af hápunktum þessa fyrsta PGA Tour keppnistímabils hans var hann hann fékk albatross á par-5 18. brautinni á Barracuda Championship, sem var 8 stiga virði skv. Stableford kerfinu. ÞFyrir þetta högg vann hann $50,000 til góðgerðarmála í Nevada (þar sem mótið fór fram og eins $50,000 fyrir góðgerðarmál að eigin vali Gibson. Gibson valdi Maximum Chances, sem er góðgerðarstofnun stofnuð af landa hans, Ástralanum Greg Chalmers, sem rannsakar einhverfu og ver fjármunum til einhverfra.
Í janúar 2018 kom upp leiðindaatvik á The Bahamas Great Abaco Classic á Web.cm Tour þar sem Gibson náðist á mynd þar sem hann henti pútters „headcoverinu“ í kylfusvein sinn Brandon Davis eftir að Davis hafði náði í bolta í torfæru … sem kostaði Gibson 1 högg í víti.
Helstu sigrar Gibson eru eftirfarandi:
Sem áhugamaður:
2008 Oklahoma State Amateur
Sem atvinnumaður:
Á Web.com Tour: 19 Jun 2019 BMW Charity Pro-Am −21 (66-64-63=193) átti 3 högg á Michael Miller
Á NGA Tour: 2013 Avoca Classic
Aðrir sigrar:
2010 Oklahoma Open
2013 Arkansas Open
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
