Nýju strákarnir á PGA 2020: Lanto Griffin (21/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.
Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.
Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.
Í dag verður kynntur sá kylfingur, sem varð í 5. sæti eftir reglulega tímabilið, Lanto Griffin sem var með 1414 stig á stigalista Korn Ferry Tour.
Lanto Griffin fæddist í Mount Shasta í Kaliforníu, 15. júní 1988 og er því 31 árs.
Sem smápatti fluttist hann með fjölskyldu sinni til Blacksburg, Virginíu.
Hann spilaði síðan í bandaríska háskólagolfinu með Virginia Commonwealth University, þar sem hann var m.a. valinn Colonial Athletic Association leikmaður ársins 2009. Griffin gerðist atvinnumaður í golfi árið 2010.
Griffin spilaði á PGA Tour Latinoamérica árin 2015 og 2016. Þar sigraði hann m.a. Roberto De Vicenzo Punta del Este Open Copa NEC árið 2015. Sama ár vann Griffin líka á heimavelli þ.e.Virginia Open.
Griffin hóf að spila á Web.com Tour árið 2017. Það sem lagði grunninn að veru hans á PGA Tour keppnistímabilið 2017-2018 er sigur hans á Nashville Golf Open, en þar varð hann fyrsti kylfingurinn á Web.com túrnum í 13 ár til þess að sigra í móti eftir að hafa rétt skriðið í gegnum niðurskurð.
Griffin er fremur hávaxinn 1,9 m á hæð og 86 kg.
Hann er aftur kominn á PGA Tour eftir að hafa spilað 2018-2019 keppnistímabilið mestmegnis á undanfara Korn Ferry vegna sigurs hans á Robert Trent Jones Golf Trail Championship 2019.
Í aðalmyndaglugga: Lanto Griffin – dæmigerð golfhanskamynd! 🙂
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
