Nýju strákarnir á PGA 2020: Kramer Hickok (47/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.
Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Korn Ferry Tour Finals og fengu kortin sín þannig.
Í dag verður kynntur sá sem varð í 4. sæti á Korn Ferry Tour Finals en það er Kramer Hickok, sem var með 661 stig.
Kramer Hickok fæddist 14. apríl 1992 í Texas og er því 27 ára. Foreldrar hans eru Doug og Lisa Hickok og hann á einn eldri bróður, Carter.
Hann er 1.8 m á hæð og 81 kg.
Á yngri árum stundaði Hickok aðrar íþróttir en golf m.a. fótbolta og bandarískan fótbolta.
Hann var í University of Texas at Austin og lék þar í 4 ár með háskólaliðinu í bandaríska háskólagolfinu.
Hickok útskrifaðist frá Texas háskóla árið 2015 með gráðu í jarðfræði, en það ár gerðist hann atvinnumaður í golfi.
Hann hefir sagt að ef hann væri ekki atvinnumaður í golfi myndi hann vera fasteignasali eins og faðir hans og eldri bróðir.
Árið 2016 var Hickok kominn á undanfara Korn Ferry en ákvað að spila í Kanada.
Hann hóf því ferilinn eftir útskrift á PGA Tour Canada, þar sem hann var valinn leikmaður ársins 2017.
Það ár sigraði hann nefnilega tvívegis á mótaröðinni þ.e. á Players Cup og Ontario Championship hosted by National Pines Golf Club.
Árið 2018 sigraði Hickok á undanfara Korn Ferry Tour, (Web.com Tour) þ.e. á mótinu DAP Championship presented by NewBrick og sá sigur varð til þess að hann spilaði á PGA Tour 2019.
Nú er Hickok að endurnýja spilaréttindi sín með afgerandi hætti þ.e. 4. sætinu á Korn Ferry Finals og spilar því enn á PGA Tour 2020.
Annað um Hickok:
Uppáhaldslið Hickok eru Dallas Mavericks, the Dallas Cowboys, the Texas Rangers og the Texas Longhorns.
Honum finnst gaman að fylgjast með Steph Curry, Dez Bryant og Dirk Nowitzki.
Uppáhaldsbókin er biblían.
Borgir sem honum finnst gaman að heimsækja eru London og Whitefish, Montana.
Uppáhaldsmatur er sushi.
Er styrktaraðili College Golf Fellowship.
Álítur Fred Couples vin og læriföður.
Meðal þess sem Hickok á eftir og er ofarlega á listanum hjá honum er að kafa við Great Barrier Reef.
Áhugamál utan golfsins eru veiðar.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
