Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Cameron Davis (30/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.

Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Korn Ferry Tour Finals og fengu kortin sín þannig.

Í dag verður kynntur sá sem varð í 21. sæti Korn Ferry Tour Finals en það er Cameron Davis, sem var með 193 stig.

Cameron Davis fæddist í Sydney, Ástralíu, 21. febrúar 1995 og er því 24 ára.

Davis er fremur hávaxinn eða 1,9 m á hæð.

Hann átti farsælan áhugamannsferil, þar sem hann sigraði m.a. á Australian Amateur 2015 og varð í 2. sæti í Asia-Pacific Amateur Championship, á eftir Jin Cheng, sama ár. Árið á eftir (2016) sigraði Cameron Davis bæði einstaklings- og liðakeppni í Eisenhower Trophy.

Seint á árinu 2016 gerðist Davis atvinnumaður í golfi.

Fyrsti sigurinn sem atvinnumaður kom 2017 á heimavelli þ.e. Emirates Australian Open. Þar átti Cameron Davis 1 högg á þá Jonas Blixt og Matt Jones. Næstum því upp á dag fyrir ári síðan (2018) sigraði Davis síðan á 1. móti sínu á Web.com Tour þ.e. Nashville Golf Open, þann 27. maí 2018.

Besti árangur Davis í risamótum er T-39 árangur á Opna breska, 2018.