Nýju strákarnir á PGA 2020: Beau Hossler (43/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.
Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Korn Ferry Tour Finals og fengu kortin sín þannig.
Í dag verður kynntur sá sem varð í 8. sæti á Korn Ferry Tour Finals en það er Beau Hossler, sem var með 482 stig.
Beau Hossler fæddist 16. mars 1995 í Mission Viejo, Kaliforníu og því 24 ára.
Hann er reyndar frá Rancho Santa Margarita í Kaliforníu, þar sem hann býr. Hossler er 1,85 m á hæð og 88 kg.
Hossler vakti fyrst athygli á sér 2012, þegar hann 17 ára gamall tók þátt í Opna bandaríska í 2. skipti og varð T-29, sem enn er besti árangur hans í risamóti. Hossler ávann sér einnig rétt til þátttöku í Opna bandaríska 2015 og þá varð hann T-58.
Hossler útskrifaðist frá Santa Margarita Catholic menntaskólanum. Árið 2013, hóf hann nám við University of Texas á golfskólastyrk.
Á þeim 3 árum, sem hann var í Texas háskóla vann hann 6 einstaklingstitla í bandaríska háskólagolfinu og 2016 vann hann Fred Haskins Award, sem besti kylfingur í bandaríska háskólagolfinu það ár.
Hann gerðist atvinnumaður 2016, þegar hann átti bara eftir 1 ár í bandaríska háskólagolfinu.
Helstu sigrar Hossler sem áhugamanns í golfi eru eftirfarandi:
2010 Trader Joe’s Junior Championship, Stockton Sports Commission Junior
2011 Callaway Junior World Golf Championships (boys 15–17)
2012 Winn Grips Heather Farr Classic
2013 Southern California Amateur
2014 Southern California Amateur, Western Amateur
2015 John Hayt Collegiate Invitational, Nike Collegiate Invite
2016 Arizona Intercollegiate, Jones Cup Invitational, John Burns Intercollegiate, Lamkin Grips SD Classic, 3M Augusta Invitational
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
