Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2017 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2018: Talor Gooch (18/50)

Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.

Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.

Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.

Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim, sem var á toppnum.

Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.

Sá sem varð í 8. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals$279,349 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $8,033; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$271,316) var bandaríski kylfingurinn Talor Gooch.

Talor Gooch fæddist 14. nóvember 1991 í Midwest City, Oklahoma og er því 26 ára.

Hann er 1.83 m á hæð og 91 kg.

Golfklúbburinn, sem hann er í, heitir Oak Tree National.

Gooch lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Oklahoma State University (2011-2014).

Talor gerðist atvinnumaður í golfi, eftir útskrift í háskóla, árið 2014.

Gooch lék fyrst á hinum kanadíska MacKenzie Tour 2015; síðan á Web.com Tour frá árinu 2016.

Fyrsti og eini sigur Gooch á Web.com Tour og sá sem fleytti honum á PGA Tour, vegna verðlaunafjárins er: 2017 News Sentinel Open presented by Pilot.

Ýmsir fróðleiksmolar um Gooch:

*Gooch notar 25 centa mynt, sem boltamerki.
*Pabbi Gooch, þ.e. Ron Gooch lék í 5 ár með Texas Rangers í bandaríska fótboltanum.
*Í draumaholli Gooch myndu vera pabbi hans, Kelsey Cline and Steve Ball.
*Uppáhaldsatvinnumannalið Gooch eru Dallas Cowboys.