Nýju strákarnir á PGA 2018: Steve Wheatcroft (30/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað var á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hlutu þannig kortin sín í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 var byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Hann var kynntur í gær, Chesson Hadley, efsti maður á peningalista Web.com Tour 2017.
Nú verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar, en þeir 25 hljóta einnig spilarétt og kort fyrir 2017-2018 keppnistímabilið á PGA Tour.
Sá sem var í 21. sæti og komst inn á PGA Tour í gegnum Web.com Tour finals er Steve Wheatcroft frá Bandaríkjunum en hann var með verðlaunafé á Web.com Finals upp á samtals $44,526.
Steve Wheatcroft fæddist í Indiana, Pennsylvaníu, 21. febrúar 1978 og er því 39 ára.
Hann byrjaði í golfinu með afa og ömmu. Í dag er hann kvæntur Sarah Michelle Skevington (síðan 2013).
Hann er 1,91 m á hæð og 98 kg.
Wheatcroft lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Indiana University Bloomington og útskrifaðist þaðan 2001. Það ár, 2001 gerðist hann jafnframt atvinnumaður í golfi.
Wheatcroft er félagi í TPC Sawgrass í Flórída.
Meðal áhugamála Wheatcroft er að elda, hlusta á tónlist og horfa á kvikmyndir.
Wheatcroft hefir spilað á Web.com Tour frá árinu 2006 og verið inn og út á PGA Tour frá árinu 2007.
Hann á tvo sigra á Web.com Tour í beltinu:
2011 Melwood Prince George’s County Open Presented by Under Armour
2014 Albertsons Boise Open presented by Kraft Nabisco
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
