Nýju strákarnir á PGA 2018: Nate Lashley (14/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.
Sá sem varð í 12. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $274,486 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $22,326; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$252,160) var bandaríski kylfingurinn Nate Lashley.
Nate Lashley fæddist í Scottsbluff, Nebraska, 12. desember 1982 og er því 34 ára.
Hann er 1,85 m á hæð og 86 kg.
Það voru foreldrar Lashley, sem kenndu honum golf þegar hann var 8 ára.
Lashley var í Mitchell High School (menntaskóla) í Nebraska og þar spilaði hann aðallega körfubolta og vann þrívegis all-state honors viðurkenninguna meðan hann var í körfunni.
Lashley var síðan í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með liði University of Arizona.
Alþjóðlegir sigrar Lashley í golfinu eru eftirfarandi:
* 2009 Utah Open
* 2010 Waterloo Open
* 2011 Waterloo Open
* 2015 Utah Open
Keppnistímabilið 2015-2016 var Lashley á PGA Tour Latinoamérica og sigraði þrívegis á þeirri mótaröð: þ.e. á San Luis Championship, Copa Diners Club International og Shell Championship.
Næsta keppnistímabil 2016-2017 var Lashley á Web.com Tour og nú í ár, 2017, sigraði Lashley í 1. sinn á Web.com Tour, þ.e. á Corales Puntacana Resort and Club Championship og var sá sigur sá, sem í raun kom honum á bestu karlgolfmótaröð heims, PGA Tour.
Nate Lasheley komst í fréttirnar ekki fyrir alls löngu því hann missti kærustu sína og foreldra sviplega í flugslysi – lesa má um það með því að SMELLA HÉR:
Uppáhaldstómstundaiðja Lashley eru vatnaíþróttir, að vera á skíðum og veiðar.
Nokkrir fróðleiksmolar í lokinn um Lashley:
*Það að spila í U.S. Amateur í Oakmontog að spila í lokaúrtökumóti PGA Tour eru hápunktar ferilsins í golfinu hjá Lashley *Vann fyrst sem fasteignasali eftir úrskrift úr háskóla
*Uppáhaldskvikmyndin er „Old School“.
*„Breaking Bad“ er uppáhaldssjónvarpsþáttur Lashley.
*Steik og sushi eru uppáhaldsmatur Lashley..
*San Diego og New York eru uppáhaldsfrístaðir Lashely. .
*Í draumaholli Lashley myndu vera auk hans sjálfs, faðir hans, Arnold Palmer og Tiger Woods.
*Meðal þess sem er á óskalista Lashley er að fara í fallhlífarstökk og að ferðast til Evrópu og Ástralíu. to Europe and Australia.
*Persónulegt mottó Lashley er: „Lifðu hvern dag eins og hann væri þinn síðasti.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
