Nýju strákarnir á PGA 2018: Kyle Thompson (13/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.
Sá sem varð í 13. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $268,742 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $2,430; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$266,312) var bandaríski kylfingurinn Kyle Thompson.
Kyle Thompson fæddist í Panama City, Flórída, 25. apríl 1979 og er því 38 ára.
Thompson mun á næsta keppnistímabili spila á PGA Tour. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2001.
Helstu sigrar Kyle Thompson sem áhugamanns eru eftirfarandi:
1999 NCAA East Regional
2001 NCAA West Regional
2001 Dogwood Invitational
Thompson á Nationwide Tour (undanfara Web.com Tour) á árabilinu 2003 – 2007. Hann sigraði í 2 mótum 2007, sem gerði það að verkum að hann varð meðal efstu 25 og hann fékk kortið sitt á PGA Tour fyrir árið 2008. Hann sneri síðan aftur áNationwide Tour árið 2009 eftir að hafa aðeins náð niðurskurði í 9 af 26 mótum.
Thompson sneri aftur á PGA Tour árið 2012, en náði aðeins 3 sinnum niðurskurði í 22 mótum, sem hann tók þátt í. Hann sigraði á 4. móti sínu á Web.com Tourþegar hann sigraði 2015 á Rex Hospital Open, í 3. sinn sem hann vann það mót..
Þann 11. janúar 2017 sigraði Kyle Thompson síðan á The Bahamas Great Exuma Classic á Web.com Tour, en þessi sigur myndar meginuppistöðuna á góðu gegni Kyle á peningalista We.bom Tour.
Loks mætti geta að Kyle Thompson hefir tvívegis (2012 og 2017) tekið þátt í risamóti en í bæði skiptin var það Opna bandaríska og í bæði skiptin náði hann ekki niðurskurði.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
