Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2017 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2018: Ethan Tracy (5/50)

Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour, sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.

Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.

Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.

Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.

Sá sem varð í 21. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $189,211 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $28,000; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$161,211) var bandaríski kylfingurinn Ethan Tracy .

Ethan Tracy fæddist í Columbus, Ohio, 10. nóvember 1989 og á sama afmælisdag og  Andri Þór „okkar“ Björnsson, atvinnukylfingur úr GR, Sigmundur Einar Másson, GKG og spænski kylfingurinn Jon Rahm.

Tracy er því 27 ára. Hann er 1,8 m á hæð og 73 kg.

Tracy var í  Hilliard Darby High School og eins var hann í bandaríska háskólagolfinu, en hann keppti fyrir  Arkansas Razorbacks þar sem hann var „all-Southeastern Conference.“

Hann átti glæstan áhugamannsferil, vann m.a. Western Amateur, árið 2011.

Tracy gerðist atvinnumaður í golfi árið eftir 2012.

Atvinnumannsferill Ethan Tracy
Tracy hefir 4 sinnum sigrað á minni mótaröðum.  Árið 2015 spilaði Tracy á PGA Tour Canada (þar var besti árangur hans  T7 á Bayview Place Island Savings Open) og eins PGA Tour Latinoamérica (þar var besti árangur hans T2 at the Lexus Panama Classic). Hann varð í 22. sæti á kanadíska peningalistanum og í 40. sæti á suður-ameríska PGA Tour peningalistanum.

Árið 2016 tók Tracy þátt í Opna bandaríska, náði niðurskurði og lauk keppni T-65, sem til dagsins í dag er besti árangur hans í risamóti.

Þann 12. febrúar 2017 sigraði Tracy í Club Colombia Championship eftir bráðabana við Roberto Diaz, þar sem hann vann á 2. holu bráðabanans með skori upp á 13 undir pari, 271 höggi (69-69-68-65).  Þessi sigur lagði grunninn að því að Tracy spilar nú á PGA Tour.

Tracy komst því miður ekki í gegnum niðurskurð 1. móti PGA Tour keppnistímabilið 2017-2018, Safeway Open, sem lauk í gær 8. október 2017.