Nýju strákarnir á PGA 2018: Ben Silverman (16/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.
Sá sem varð í 10. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $278,187 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $21,281; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$256,906) var kanadíski kylfingurinn Ben Silverman.
Ben Silverman fæddist í Thornhill, Ontario, í Kanada.15. nóvember 1987 og er því 29 ára.
Silverman var í bandaríska háskólagolfinu en hann lék með liði Johnson & Wales University; Florida Atlantic University, þaðan sem hann útskrifaðist 2010, með gráðu í sálfræði.
Silvermann gerðist atvinnumaður í golfi sama ár og hann útskrifaðist úr háskóla, þ.e. 2010.
Silverman á einn sigur á alþjóðlegu golfmóti í beltinu, en það er sigur á Maccbiah Games, 2013.
Frá árinu 2014 spilaði Silverman á hinum kanadíska MacKenzie Tour og frá árinu 2016 á Web.com Tour.
Hann á einn sigur á Web.com Tour, þann sem fleytti honum inn á mótaröð þeirra bestu PGA Tour, en mótið sem Silverman sigraði á var 2017 Price Cutter Charity Championship presented by Dr Pepper.
Ben Silverman kvæntist eiginkonu sinni Morgan, 18. júlí nú í ár, 2017.
Silverman er í tveimur golfklúbbum: í einum, nálægt þeim stað þar sem hann býr í dag, Palm Beach, Florida, en sá golfklúbbur heitir Mayacoo Lakes CC og hinn er nálægt heimabæ Silverman í Kanada þ.e. Maple Downs CC.
Meðal helstu áhugamála Silverman utan golfsins eru CrossFit, snjóbretti, ævintýra gönguferðir, að kanna nýja staði, vera á ströndinni, horfa á kvikmyndir og allt sem snertir samkeppni.
Ýmsir fróðleiksmolar um Silverman:
*Uppáhaldsíþróttamenn Silverman sem hann fylgist með eru Tiger Woods, LeBron James og Sidney Crosby.
*Í draumaholli Silverman, auk hans sjálfs myndu vera: Tiger, Fred Couples og Rory McIlroy.
*Uppáhaldsgolfvöllur Silverman er Isleworth og uppáhaldslið Silverman eru Miami Heat og the Miami Dolphins.
*Twitterfang Silverman er: is @benw_silverman
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
