
Nýju strákarnir á PGA 2018: Andrew Landry (23/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum.
Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.
Sá sem varð í 12. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $388,894 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $95,955; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$292,939) var bandaríski kylfingurinn Andrew Landry.
Andrew Landry fæddist í Port-Neches Groves í Texas, 7. ágúst 1987 og er því 30 ára.
Hann er 1,7 m á hæð og 68 kg.
Hann nam samskiptafræði (ens. communications) við Arkansas háskóla, spilaði í bandaríska háskólagolfinu og útskrifaðist frá Arkansas háskóla árið 2009.
Strax eftir útskrift 2009 gerðist Landry atvinnumaður í golfi.
Landry býr í Austin, Texas og þar er hann í Spanish Oaks golfklúbbnum.
Landry hefir verið á Web.com Tour frá árinu 2015 og PGA Tour frá árinu 2016. Landry á í beltinu 2 sigra á Web.com Tour: sá fyrri kom 2015 Cartagena de Indias at Karibana Championship Presented by Prebuild og seinni sigurinn og sá sem er aðalástæða þess að Landry heldur kortinu sínu á PGA Tour kom nú í ár, 2017 og er The Bahamas Great Abaco Classic at The Abaco Club.
Ýmsir fróðleiksmolar um Landry:
*Ef hann væri ekki atvinnukylfingur myndi hann gjarnan vera fiskveiði leiðsögumaður (ens. fishing guide).
*Uppáhaldsmatur Landry eru vatnakrabbar og hráar ostrur.
*Uppáhaldsatvinnumannalið Landry eru Los Angeles Dodgers og Atlanta Braves.
´Frægasta manneskja sem Landry hefir hitt er George W. Bush, forseti, þegar hann var við veiðar í Dallas.
Hann hefir einu sinni spilað á 58 höggum á heimavelli sínum 9 holu Pea Patch“ í Groves, Texas (sem síðan hefir verið lokaður).
- desember. 15. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Don Johnson ——– 15. desember 2019
- desember. 15. 2019 | 09:30 Forsetabikarinn 2019: Tiger um ósk Ancer að spila við sig: „Hann fékk það sem hann vildi!“
- desember. 15. 2019 | 09:00 Forsetabikarinn 2019: Els tapar enn einu sinni f. Tiger – Það er sárt!
- desember. 15. 2019 | 08:30 Forsetabikarinn 2019: Fyrstu orð Tiger e. sigurinn!!!
- desember. 15. 2019 | 08:00 Forsetabikarinn 2019: Lið Bandaríkjanna sigraði 16-14!!!
- desember. 14. 2019 | 20:00 Golfgrín á laugardegi 2019 (50)
- desember. 14. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðjón Grétar Daníelsson – 14. desember 2019
- desember. 14. 2019 | 14:00 Forsetabikarinn 2019: Mágur Reed rekinn!
- desember. 14. 2019 | 09:00 Forsetabikarinn 2019: Staðan 10-8 f. Alþjóðaliðið e. 3. dag
- desember. 13. 2019 | 23:00 Forsetabikarinn 2019: Tiger og JT fagna á 2. degi!
- desember. 13. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Rickie Fowler og Finnbogi Steingrímsson – 13. desember 2019
- desember. 13. 2019 | 13:00 Forsetabikarinn 2019: Reed f. aðkasti ástralskra golfáhangenda
- desember. 12. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Sveinsson – 12. desember 2019
- desember. 11. 2019 | 18:00 Nýju strákarnir á Evróputúrnum: Lars Van Meijel (6/28)
- desember. 11. 2019 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Magnús Gautur og Ólafur Már – 11. desember 2018