
Nýju strákarnir á PGA 2013: Steve Bowditch – (17. grein af 26)
Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013.
Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 17.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1.
Nú er komið að Steve Bowditch sem var í 10. sætinu.
Steve Bowditch fæddist 8. júní 1983 í Newcastle, New South Wales, í Ástralíu og er því 29 ára. Hann átti glæstan áhugamannsferil þar sem hann var m.a. sigurvegari á Australian Amateur 2001. Bowditch hefir aðallega spilað á Nationwide Tour (þar sem hann á í beltinu 2 sigra) og á Ástralasíutúrnum (þar sem hann hefir sigrað 3 sinnum).
Eins hefir Bowditch spilað í 2. deild í Ástralíu, l Von Nida Tour. Einn sigur hans hans var á móti sem var samvinnuverkefni Ástralasíutúrsins og Nationawide Tour: Jacob´s Creek Open Championship 2005 og 2. sigur hans á Nationwide var á Soboba Golf Classic, 2010 en þá varð hann 17. á peningalistanum og hlaut kortið sitt á PGA í fyrsta sinn.
Bowditch hefir um langt skeið þurft að kljást við þunglyndi og er talsmaður beyondblue, sem eru áströlsk NGO samtök sem m.a. stuðla að aukinni meðvitund og fræðslu um þunglyndi og andlegum sjúkdómum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024