Nýju strákarnir á PGA 2013: Fabián Gómez – (16. grein af 26)
Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013.
Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 17.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1.
Nú er komið að 3 strákum sem deildu 10. sætinu þeim: Michael Letzig, Jeff Gove og Fabian Gomez. Michael Letzig og Jeff Gove hafa þegar verið kynntir og í kvöld er komið að Fabián Gómez.
Fabián Gómez fæddist í Chaco, Argentínu 27. október 1978 og er því 34 ára. Hann byrjaði í golfi 8 ára sem kylfusveinn og gerðist síðan atvinnumaður í golfi árið 2002. Fabián hefir áður spilað á PGA Tour, Nationwide Tour og Tour de las Americas.
Gómez hefir þrisvar sinnum sigrað á Tour de las Americas og auk þess þrisvar sinnum á Argentine TPG Tour. Hann varð í 2. sæti í Chaco Open árið 2006 og á TLA Players Championship, 2006 og Venezuela Open, árið 2007. Gomerz varð efstur á stigalista TPG Tour, árið 2009.
Gómez vann 1. og eina sigur sinn á Nationawide Tour á Chitimacha Louisiana Open, árið 2010. Hann varð í 12. sæti á peningalistanum það ár og ávann sér því kortið sitt á PGA Tour keppnistímabilið 2011. Nú er Gómez enn á ný á PGA Tour eftir að hafa landað 10. sætinu á Q-school PGA 2012.
Nokkrar staðreyndir um Fabián Gómez:
Uppáhaldsatvinnumannalið Gómez er Boca, Jr., sem er fótboltalið í Argentínu.
Uppáhaldskvikmynd Gómez er „Gladiator“ og uppáhaldsmaturinn: asado (sem er argentínskt nauta barbecue og alveg hryllilega gott!!!). Uppáhaldsborg Gómez er Miami.
Loks eru Tiger og Diego Maradonna átrúnaðargoð Gómez.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
