Nýju strákarnir á PGA 2013: Jeff Gove – (15. grein af 26)
Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013.
Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 17.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1.
Nú er komið að 3 strákum sem deildu 10. sætinu þeim: Michael Letzig, Jeff Gove og Fabian Gomez. Í gær var Michael Letzig kynntur og í dag er það Jeff Gove.
Jeff Gove fæddist 28. maí 1971 í Seattle, Washington og er því 41 árs. Hann hefir spilað bæði á PGA Tour og Nationwide Tour (nú Web.com Tour). Gove spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Pepperdine University og eftir útskrift gerðist hann atvinnumaður árið 1994.
Gove hefir eins og áður segir pendúlast milli PGA Tour og Nationwide Tour – þannig var hann á PGA Tour árin 2000, 2006-08 og árið 2010 þ.e. sléttu árin hafa reynst honum betur hingað til – með 2013 sem undantekningu!!!
Gove spilaði á Nationwidw Tour 1995-1999, 2001, 2003-05, 2009 og 2010-12. Hann hefir sigrað þrisvar sinnum á Nationwide Tour og besti árangur hans á PGA Tour er T-6 árangur á Booz Allen Classic árið 2006 og John Deer Classic, árið 2007.
Árið 2007 ávann Gove sér líka spilarétt í FedEx Cup umspilinu því hann varð í 144. sæti á FedEx Cup listanum.
Árið 2009 varð Gove 17. á peningalista Nationwide Tour og vann sér þannig inn kortið sitt á PGA Tour – Seint á síðasta, 2012 ári fór hann í Q-school og var í 10.-12. sæti sem fyrr segir og spilar því á PGA Tour, keppnistímabilið 2013.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
