Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2020 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Rasmus Højgaard (24/28)

28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.

Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.

Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.

Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson, GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.

Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-28, þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu og þá 4, sem deildu 13. sætinu; þá 5, sem urðu T-8 og Aaron Cockerill, sem varð í 7. sæti.

Næst verða kynntir þeir tveir sem urðu T-5 í lokaúrtökumótinu, en það eru danski kylfingurinn Rasmus Højgaard og enski kylfingurinn Laurie Canter en þeir léku báðir á samtals 16 undir pari, 412 höggum.

Canter hefir þegar verið kynntur og nú er röðin komin að Rasmus, en hann varð uppreiknað í 5. sætinu.

Rasmus Højgaard fæddist 12. mars 2001 og var sá yngsti, sem komst í gegnum lokaúrtökumótið, aðeins 18 ára.

Fyrst fór að bera á Rasmus Højgaard í júlí 2016, þegar hann sigraði á the Danish International Amateur Championship og var hluti af danska liðinu sem varð í 3. sæti á European Boys’ Team Championship og vann síðan McGregor Trophy vikuna á eftir. Árið 2017 hlaut Højgaard athygli í piltaflokki þar sem hann var fulltrúi liðs Meginlands Evrópu í  Jacques Léglise Trophy.Hann var einnig í danska liðinu sem sigraði 2017 í European Boys Team Championship,þar sem liðið hafði betur gegn liði Dana í lokaviðureigninni.

Snemma árs 2018 var Rasmus Højgaard í liði Evrópu í Bonallack Trophy, þar sem spilað var gegn liði Asia/Pacific. Í júní það ár sigraði hann í einstaklingskeppni pilta í Toyota Junior World Cup, átti 4 högg á bróður sinn, Nicolai. Lið Danmerkur sigraði í liðakeppninni. Í september var hann í landsliði Danmerkur sem sigraði Eisenhower Trophy 2018 og spilaði fyrir lið Evrópu í Junior Ryder Cup seinna þann mánuð.

Helstu sigrar Höjgaard sem áhugamanns eru eftirfarandi:

2015 Aon Junior Tour Drenge 1
2016 Danish International Amateur Championship, McGregor Trophy, DGU Elite Tour III Drenge
2017 Hovborg Kro Open, KGC Masters
2018 Toyota Junior World Cup

Atvinnumennskan
Rasmus Højgaard  gerðist atvinnumaður í golfi í ársbyrjun 2019, þá 17 ára. Eftir að hafa spilað á nokkrum mótum á Nordic Golf League spilaði hann á Áskorendamótaröð Evrópu (ens.: Challenge Tour) það sem eftir var keppnistímabilsins. Hann var einn af 5, sem urðu í 2. sæti á fyrsta móti Áskorendamótaraðarinnar, Challenge de España. Jafnvel þó að hann hafi átti nokkra topp-10 árangra, varð hann í 21. sæti á stigalistanum, þannig að hann komst ekki sjálfkrafa á Evróputúrinn 2020 og varð að hafa fyrir því að fara í lokaúrtökumótið. Þar náði hann þeim glæsilega árangri að verða T-5.  Í desember 2019 sigraði Rasmus Højgaard síðan á fyrsta móti sínu á Evrópumótaröðinni, þ.e. AfrAsia Bank Mauritius Open, sem var 2. mótið á Evróputúrnum á 2020 keppnistímabilinu – en þar stóð Rasmus einn eftir sem sigurvegari eftir 3 manna bráðabana, þar sem hann sigraði þá Renato Paratore og Antoine Rozner á 3. aukaholunni.

Einkalíf
Rasmus Højgaard á tvíburabróður, Nicolai, sem einnig er atvinnukylfingur og var líka hluti af danska liðinu sem sigraði í Eisenhower Trophy árið 2018.