Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Laurie Canter (23/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson, GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.
Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-28, þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu og þá 4, sem deildu 13. sætinu; þá 5, sem urðu T-8 og Aaron Cockerill, sem varð í 7. sæti.
Næst verða kynntir þeir tveir sem urðu T-5 í lokaúrtökumótinu, en það eru danski kylfingurinn Rasmus Höjgaard og enski kylfingurinn Laurie Canter en þeir léku báðir á samtals 16 undir pari, 412 höggum.
Fyrst verður Canter kynntur en hann varð uppreiknað í 6. sætinu með skor upp á (68 71 70 70 66 67).
Laurie Canter fæddist 3. nóvember 1989 í Bath, Englandi og er því 31 árs. Canter veit það líklegast ekki, en hann á sama afmælisdag og Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri GB.
Laurie Canter er 1.88 m á hæð og 80 kg.
Hann byrjaði í golfi 14 ára, sem þykir frekar seint fyrir atvinnumann, en þótti stórefnilegur tennisleikari, en hann skipti tennisnum út fyrir golf.
Canter sigraði á South African Amateur Championship árið 2010, en fyrir ferðinni til S-Afríku vann hann fyrir á 9 holu golfvelli rétt hjá heimili sínu.
Eftir að sigra á Spanish Amateur Open Championship, 2011 ákvað hann að gerast atvinnumaður í golfi.
Sem fyndna/ófyndna eða sárgrætilega sögu af golfvellinum gæti Canter nefnt það þegar hann var lokaður inni á ferðaklósetti við 12. holu á elsta golfvelli heims (St. Andrews) … og það á einu elsta og virtasta risamótinu Opna breska, sem hann fékk að spila á sem áhugamaður. Þetta var árið 2010. Svona hafði hann ekki hugsað sér að þátttaka hans í fyrsta risamóti sínu yrði). Hann var þegar hálfri tylft högga yfir pari (samtals urðu þau 16 yfir par á tveimur dögum) og aðeins eitt nafn, Simon Edwards frá Wales var neðar. Hann komst ekki gegnum niðurskurð. Varð næstneðstur.
Sumarið 2018 fékk Canter tækifæri til að bæta úr þessu á Opna breska á Royal Birkdale og það gerði hann svo sannarlega – flaug gegnum niðurskurð og varð T-37!
Canter spilaði í einu móti á Áskorendamótaröð Evrópu 2015 en var kominn með kortið sitt á Evróputúrinn fyrir keppnistímabilið 2016 og hefir spilað á túrnum 2016 – 2019 Í öll skiptin þurfti Canter að taka þátt í lokaúrtökumóti Evróputúrsins og hefir því haft fyrir kortinu sínu öll 4 skiptin, en spilar nú enn á Evróputúrnum eftir frækilega frammistöðu (6. sætið á lokaúrtökumótinu 2019).
Sem stendur er Canter nr. 572 á heimslistanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
